Viðskipti innlent

Telur Suðurlandið fullt af „rútum í röðum“ og einblínir á Akureyri

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Algeng sjón við Gullfoss
Algeng sjón við Gullfoss Vísir/Vilhelm
Ástæða þess að breska ferðaskrifstofan Super Break ákveða að tvöfalda fjölda ferða til Akureyrar í vetur er mikil eftirspurn viðskiptavina. Framkvæmdastjóri hjá skrifstofunni segir norðurhluta Íslands bjóða upp á einstaka upplifun fyrir ferðamenn sem standi þeim ef til vill ekki boða til lengur á Suðurlandi vegna fjölda ferðamanna þar.

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 í gær en forsvarsmenn Super Break komu til Akureyrar á mánudaginn í fylgd forráðamanna flugfélagsins Titan Airways sem mun fljúga fyrir ferðaskrifstofuna. Super Break skipulagði alls fjórtán ferðir á síðasta ári til Akureyrar en í vetur mun fjöldi ferða ríflega tvöfaldast og verða 29.

„Aðallega bara vegna eftirspurnar frá viðskiptavinum. Þrátt fyrir vandræðin sem við lentum í í fyrra skemmtu viðskiptavinirnir sér í nær öllum tilfellum frábærlega,“ segir Chris Hagan, framkvæmdastjóri hjá Super Break, aðspurður um af hverju ákveðið hafi verið að fjölga ferðum.

Chris Hagan, framkvæmdastjóri hjá Super Break.

Æfa aðflug svo að ekkert óvænt komi upp

Vandræðin sem Hagan vísar til eru tilfelli sem komu upp þar sem flugmenn pólska flugfélagsins Enter Air, sem flaug ferðirnar fyrir Super Break síðasta vetur, gátu ekki lent á Akureyrarflugvelli og flugu þess í stað til Keflavíkur. Gerðist það í alls sex skipti af þeim fjórtán sem áætlað var að lenda á Akureyri.

Við þetta voru heimamenn ekki sáttir og í skýrslu flugklasans AIR 66N um flugferðirnar sagði að í sumum tilvikum væri erfitt að skrifa ákvörðunina um að fljúga til Keflavíkur á annað en tregðu eða vanhæfni flugfélagsins.

Til þess að koma í veg fyrir að þetta endurtæki sig var ákveðið að semja við Titan og ástæða heimsóknarinnar til Akureyrar í vikunni var að taka upp þjálfunarefni fyrir flugmenn félagsins.

„Við komum með þjálfunarstjórana okkar og við ætlum að kanna aðflugsleiðir og aðstæður á flugvellinum. Við tökum það upp og förum með myndböndin aftur til London og þannig geta flugmennirnir okkar fengið góða yfirsýn yfir aðstæður hérna á Akureyrarflugvelli,“ segir Alastair Kiernan, framkvæmdastjóri hjá Titan.

Ætla að leggja allt í sölurnar

Lengi hefur verið talað fyrir því að auka millilandaflug um Akureyrarflugvöll og segir Hagan að ástæða þess að Akureyri og Norðurland varð fyrir valinu sé tvíþætt.

„Við höfum verið að selja ferðir til Íslands í meira en fimmtán ár. Suðurhluti landsins er heillandi en þar er mjög mikið að gera. Næstum því jafn mikið að gera á veturna og sumrin. Ef maður fer á Gullfoss og Geysi og þessa staði þá eru þar bara rútur í röðum fullar af fólki,“ segir Hagan.

Norðrið sé hins vegar enn þá tiltölulega ósnert frá sjónarhóli ferðamannsins, sérstaklega á veturna, og þannig sé hægt að bjóða þeim upp á einstaka upplifun

„Við erum að fara með viðskiptavini okkar að Mývatni og stundum, sérstaklega í janúar og febrúar, þá eru þeir kannski eina fólkið á staðnum. Það er miklu betri upplifun fyrir viðskiptavini okkar. Náttúruleg fegurð Norðurlands er að mínu mati meiri en á Suðurlandi, með fullri virðingu fyrir vinum mínum sem búa þar,“ segir Hagan.

Kiernan er einnig handviss um það að flugið munið ganga smurt fyrir sig enda sé flugvélaflotinn nútímalegur og starfsliðið vel þjálfað. Hann gerir sér þó grein fyrir því að flug á norðurslóðum á þessum tíma ársins geti verið vandasamt.

„Ég held að með því að koma hingað séum við að sýna að við munum leggja allt í sölurnar til þess að tryggja að ekkert komi á óvart. Ég er viss um að þetta muni ganga vel en auðvitað mun veðrið kannski hafa einhver áhrif á það, en við munum gera okkar besta.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×