Fótbolti

Liðið klárt hjá Hamrén: Sverrir eða Ari Freyr í hægri bakverði?

Tómas Þór Þórðarson í Brussel skrifar
Ragnar er ekki með en Sverrir er samt ekki öruggur í liðið.
Ragnar er ekki með en Sverrir er samt ekki öruggur í liðið. vísir/getty
„Ef ekki fleiri meiðast þá er liðið klárt. Ég hlakka til að sjá þetta lið sem við spilum með á morgun. Þetta verður í fyrsta sinn sem þetta lið spilar saman. Ég vona bara að þeir leikmenn sem fá tækifæri á morgun nýti það.“

Þetta sagði Erik Hamrén, landsliðsþjálfari í fótbolta, við Vísi í viðtali eftir æfingu liðsins í hádeginu í dag en gríðarleg forföll eru í hópnum vegna meiðsla.

Alls eru tíu leikmenn á meiðslalistanum en í morgun dró Birkir Bjarnason sig út úr hópnum og á fréttamannafundinum eftir æfingu dagsins staðfesti Harmén að Birkir Már Sævarsson gæti ekki spilað, sömuleiðis vegna meiðsla.

Bara nokkrir öruggir

Ljóst er að Hamrén verður að gera miklar breytingar á byrjunarliðinu og því er erfitt að spá fyrir um hverjir byrja leikinn á móti Belgíu annað kvöld.

Þeir sem eru öruggir eru Hannes Þór Halldórsson í markinu, Kári Árnason í miðverði, Aron Einar Gunnarson á miðjunni og Alfreð Finnbogason frammi. Meira er það ekki þó Hörður Björgvin sé mjög líklegur til að spila vinstra megin í vörninni þrátt fyrir mistök í síðustu leikjum.

Hamrén kom inn á það á fréttamannafundi á Íslandi á dögunum að Ari Freyr Skúlason gæti vel spilað hægra megin í vörninni en þá hefur hann einnig verið að prófa Sverri Inga Ingason þar. Sverrir gefur meiri styrk inn í teignum og er því líklegur fyrir morgundaginn. Það er líklegra að Jón Guðni Fjóluson byrji í miðverðinum á morgun frekar en Sverrir.

Múrað fyrir?

Arnór Sigurðsson byrjar mögulega vinstra megin á miðjunni í sínum fyrsta landsleik en hann er sjóðheitur þessa dagana. Nafni hans Arnór Ingvi verður líklega að láta sér varamannabekkinn duga og Rúrik Gíslason byrjar hægra megin að mati Vísis en Rúrik er framarlega í goggunarröðinni hjá Hamrén.

Spurningin er hvort Svíinn verði með sóknarsinnaðan miðjumann eða reyni frekar að múra fyrir. Guðlaugur Victor Pálsson verður eflaust inn á miðjunni með Aroni Einari en hvort að Eggert Gunnþór verði með þeim eða Albert fyrir framan er stórt spurningamerki.

Hamrén vill tæplega fá aðra eins útreið og á móti Sviss en það verður ekki mikið um spil fram á við ef Aron, Eggert og Victor verða allir saman. Albert Guðmundsson er því líklegur til að spila fyrir aftan Alfreð.

Mögulegt byrjunarlið.

Tengdar fréttir

Aron Einar: Engin ein skýring á þessu gengi

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyririliði, segir að það sé engin ein skýring afhverju það hefur ekki gengið sem skildi hjá íslenska landsliðinu að ná í úrslit á árinu 2018.

Aron: Við erum ekki gamlir

Aron Einar Gunnarsson segir að það sé enn nægur tími fyrir íslenska landsliðið að endurnýja sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×