Sport

Aldrei meiri spenna um heimsmeistartitilinn í ralli

Bragi Þórðarson skrifar
Sebastian Ogier
Sebastian Ogier vísir/getty
Þrjár áhafnir og þrír bílaframleiðendur eiga möguleika á heimsmeistaratitlunum í ralli er síðasta umferðin fer fram í Ástralíu um helgina.

Sebastian Ogier og Julian Ingrassia á Ford Fiesta leiða mótið og geta tryggt sér sinn sjötta titil í röð um helgina.

Thierry Neuville og Nicolas Gilsoul á Hyundai i20 hafa leitt mótið mest allt tímabilið. Ogier hefur tekið 23 stig af þeim í síðustu tveimur keppnum og er Neuville því þremur stigum á eftir Ogier fyrir ástralska rallið.

Ott Tanak og Martin Jarveoja á Toyota Yaris eiga stærðfræðilegan möguleika á titli. Finnska áhöfnin er 23 stigum á eftir Ogier og dugir því ekkert nema sigur um helgina.

Toyota liðið er þó efst í stigakeppni bílaframleiðenda með 12 stiga forskot á Hyundai. Þar á eftir kemur Ford, 25 stigum á eftir fyrsta sætinu. Citroen, fjórði bílaframleiðandinn í mótinu, hefur átt afar dapurt tímabil og er meira en hundrað stigum frá Toyota.

Thierry Neuville og Nicolas Gilsoulvísir/getty
Slagurinn hefur ekki verið meiri síðan 2003

Aldrei hefur það skeð síðastliðin 15 ár að þrír ökumenn eigi möguleika á titli þegar ein keppni er eftir. Sömuleiðis hefur slagurinn í flokki bílasmiða ekki verið jafnari í 15 ár.



Reglubreytingar voru gerðar í rallinu fyrir tímabilið 2017. Þá var aflið aukið í tæp 400 hestöfl og var þá einnig leyfilegt að breyta yfirbyggingu bílana umtalsvert.

Fyrir vikið hafa rallýbílarnir, sem ávalt hafa verið byggðir á venjulegum fólksbílum, aldrei verið hraðari en síðastliðin tvö ár.

Heimsmeistaramótið samanstendur af 13 keppnum allstaðar í heiminum, ekið er á möl, snjó og malbiki. Rallið um helgina er eitt mest krefjandi malarrall tímabilsins, eknar verða sérleiðir í kringum bæinn Coffs Harbour á austurströnd Ástralíu

Rallið hefst á föstudaginn er eknar verða átta sérleiðir. Alls er keppnin rúmir þúsund kílómetrar er áhafnir þurfa að takast á við 24 sérleiðar á þremur dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×