Hollendingar sendu Þjóðverja í B-deildina

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hollendingar sigruðu heimsmeistarana
Hollendingar sigruðu heimsmeistarana Vísir/Getty
Hollendingar felldu Þýskaland niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA með því að vinna heimsmeistara Frakka í Hollandi í kvöld.

Georginio Wijnaldum kom heimamönnum yfir á 44. mínútu eftir að boltinn féll fyrir hann í teignum. Memphis Depay tryggði svo sigur Hollendinga með vítaspyrnu í uppbótartíma.

Sigurinn þýðir að Hollendingar eru með sex stig í öðru sæti riðils 1 og Frakkar með sjö stig á toppnum. Þjóðverjar eru hins vegar aðeins með eitt stig og geta ekki bjargað sér frá falli þó þeir vinni Hollendinga í lokaleik riðilsins.

Danir tryggðu sig upp í A-deildina með sigri á lærisveinum Ryan Giggs í landsliði Wales.

Nicolai Jorgensen skoraði seint í fyrri hálfleik og kom Dönum yfir. Martin Braithwaite tvöfaldaði forystuna á 88. mínútu og sigurinn svo gott sem í höfn.

Gareth Bale minnkaði muninn á lokamínútu venjulegs leiktíma en nær komust heimamenn ekki.

Danir eru því ósigraðir í efsta sæti með sjö stig og eiga eftir að spila við Íra í lokaleiknum. Wales er með sex stig og hefur lokið keppni, Írar sitja á botninum með eitt stig.

Úrslit kvöldsins í Þjóðadeildinni:

A deild:

Holland - Frakkland 2-0

B deild:

Slóvakía - Úkraína 4-1

Wales - Danmörk 1-2

C deild:

Kýpur - Búlgaría 1-1

Slóvenía - Noregur 1-1

D deild:

Gíbraltar - Armenía 2-6

Liechtenstein - Makedónía 0-2

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira