Svíar eiga enn möguleika á sæti í A-deild eftir sigur í Tyrklandi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úr fyrri leik liðanna.
Úr fyrri leik liðanna. vísir/getty
Svíþjóð mætir Rússlandi í hreinum úrslitaleik um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar en Svíar komu sér í þessa stöðu með því að leggja Tyrki að velli í Tyrklandi í dag.

Varnarmaðurinn sterki, Andreas Granqvist, gerði eina mark leiksins en það kom af vítapunktinum á 71.mínútu.

Úrslitin þýða að Tyrkland er fallið niður í C-deild en Svíar mætta Rússum í Svíþjóð á þriðjudag þar sem Rússum nægir jafntefli til að tryggja sér sigur í riðlinum og þar með sæti í A-deild.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira