Erlent

Telja að sum fórnarlömb kjarreldanna finnist aldrei

Kjartan Kjartansson skrifar
Hitinn sem myndaðist í kjarreldinum sem fór yfir Paradís var svo mikill að lík gætu hafa brunnið upp til agna þannig að ómögulegt verður að finna þau.
Hitinn sem myndaðist í kjarreldinum sem fór yfir Paradís var svo mikill að lík gætu hafa brunnið upp til agna þannig að ómögulegt verður að finna þau. Vísir/EPA
Um þúsund manns er enn saknað eftir kjarreldana miklu í bænum Paradís í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Leitarfólk óttast að lík sumra þeirra sem fórust muni aldrei finnast vegna þess þess hversu ákafur eldurinn var. Lík 77 manns höfðu fundist í gærkvöldi.

Paradís varð verst úti í Camp-kjarreldinum sem stækkaði á ógnarhraða fyrr í þessum mánuði. Eyðileggingin af völdum eldsins er talin sú mesta í sögu Kaliforníu. Á ellefta þúsund íbúðarhúsa urðu eldinum að bráð, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Leitarhópar freista þess enn að finna líkamsleifar fólks sem er saknað. Eldurinn var hins vegar svo heitur að mögulegt er talið að lík hafi brunnið upp til agna.

„Ef eldurinn varði nógu lengi og brann nógu heitt gætu beinin að minnsta kosti hafa brotnað svo smátt niður að við kæmum ekki auga á þau og það er mögulega að ekki einu sinni hundarnir gætu greint þau,“ segir Trish Moutard, einn sjálfboðaliðanna sem hefur leitað að fólki í brunarústunum.

Upphaflega fór listi þeirra sem var saknað upp í um tvö þúsund manns. Þekkt er að slíkt gerist í kjölfar hamfara þegar ættingum og vinum tekst ekki að ná sambandi við fólk á hamfarasvæðum þegar fjarskipti eru stopul eða liggja niðri.

Yfirvöld hafa því hvatt íbúa til þess að fara yfir lista þeirra sem er saknað svo hægt sé að fjarlægja þá sem vitað er að eru á lífi.

Lík margra þeirra sem fórust fundust í eða við bíla á einu flóttaleiðinni út úr fjallabænum Paradís. Eldurinn er sagður hafa farið svo hratt yfir að fólk sem reyndi að komast undan á bílum en sat fast í umferð hafi þurft að yfirgefa þá og forða sér á hlaupum.

Vandinn hefur ágerst með loftslagsbreytingum

Hætta er á skógareldum í Kaliforníu á haustin þegar árstíðarbundnir vindar, svonefndir Santa Ana-vindar, bera heitt og þurrt loft frá eyðimörkunum austan við Kaliforníu yfir ríkið sunnanvert. Sérfræðingar segja að áhrif loftslagsbreytinga af völdum manna hafi magnað eldhættuna með því að auka enn á þurrkinn og hitann. Fimm síðustu ár eru þau hlýjustu í Kaliforníu frá því að mælingar hófust. Í Paradís hefur úrkoman aðeins numið 25 millímetrum frá því í maí.

Þrátt fyrir það sagði Donald Trump forseti að eldarnir hefðu ekki breytt hugmyndum sínum um loftslagsbreytingar þegar hann heimsótti hamfarasvæðin um helgina. Forsetinn hefur líkt og fleiri repúblikanar afneita vísindalegri þekkingu á eðli og orsökum loftslagsbreytinga.


Tengdar fréttir

Leit að látnum gæti tekið vikur

Það gæti tekið leitarhópa og rannsakendur vikur að finna lík allra þeirra sem hafa látist í skógareldum í Kaliforníu undanfarna daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×