Fótbolti

Efnilegur Hollendingur getur valið milli stærstu liða Evrópu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Matthijs de Ligt á blaðamannafundi.
Matthijs de Ligt á blaðamannafundi. vísir/getty
Einn efnilegasti leikmaður heims Matthijs de Ligt mun væntanlega geta valið um lið næsta sumar en talið er að hann yfirgefi þá Ajax.

Þessi nítján ára gamli miðvörður hefur vakið mikla athygli á þessu tímabili og því síðasta en talið er að mörg stærstu félög Evrópu séu með augun á Hollendingnum.

Barcelona, Juventus, Manchester City eru sögð áhugasöm um hann en einnig eru Manchester United og Chelsea einnig sögð fylgjast með framgöngu mála.

Mundo Deportivo dagblaðið á Spáni segir að hann muni yfirgefa hollenska félagið næsta sumar en ekki hefur hann gert upp hug sinn hver sé næsti áfangastaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×