Fótbolti

Marca segir Barcelona íhuga að fá Neymar aftur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Skiptir Neymar um lið í janúar?
Skiptir Neymar um lið í janúar? vísir/getty
Spænski miðillinn Marca greindi frá því á vef sínum í gærkvöldi að Barcelona væri að íhuga að gera nokkuð óvænt tilboð í Neymar.

Hinn 26 ára gamli Neymar yfirgaf Barcelona síðasta sumar er hann yfirgaf Börsunga fyrir gylli tilboð frá PSG í Frakklandi. Þar hefur hann leikið síðan.

Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hafa borist fréttir af Neymar sem vill burt frá Frakklandi en deildin er ekki talin upp á marga fiska. Þar er einstefna PSG að titlinum.

Brasilíumaðurinn hefur verið mikið orðaður við Real Madrid en nú segir Marca frá því að Börsungar séu að íhuga að gera afar óvænt tilboð í Neymar.

Neymar er talinn vilja fara aftur til Barcelona þar sem hann myndaði magnað framherjatríó með Lionel Messi og Luis Suarez. Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist með Neymar á komandi mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×