Íslenski boltinn

Óttar Bjarni samdi við ÍA

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
mynd/ía
Óttar Bjarni Guðmundsson mun spila með Skagamönnum í Pepsi deild karla næsta sumar.

Hann skrifaði undir tveggja ára samning við ÍA í dag.

Óttar er uppalinn hjá Leikni Reykjavík en hefur undanfarin ár spilað með Stjörnunni.

„Óttar spilar sem varnarmaður og er Jóhannes Karl, þjálfari meistaraflokks, mjög spenntur fyrir þeirri viðbót sem Óttar er í leikmannahóp Í.A. Jóhannes telur að Óttar eigi eftir að koma sterkur inn í þeirri baráttu sem framundan er í Pepsi deildinni næsta sumar, en hann er mjög reynslumikill leikmaður með yfir 200 leiki í meistaraflokk,“ segir í tilkynningu á heimasíðu ÍA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×