Íslenski boltinn

Valur kaupir Birni frá Fjölni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birnir í búningi Vals.
Birnir í búningi Vals. vísir/valur
Birnir Snær Ingason er genginn í raðir Íslandsmeistara Vals en félagið staðfesti þetta síðdegis í dag.

Birnir hefur verið orðaður við Val frá því að tímabilinu lauk en nú er loks búið að staðfesta kaupin en Valur kaupir hann frá Fjölni.

Hann kom við sögu í öllum leikjum Fjölnis í sumar og skoraði í þeim fimm mörk en Fjölnismenn féllu úr Pepsi-deildinni.

Birnir er fæddur 1996 og hefur spilað 72 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim þrettán mörk. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Íslandsmeistarar Vals fá í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×