Bíó og sjónvarp

Staðfestu fréttirnar sem margir biðu eftir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Martin Lawrence og Will Smith fara með aðalhlutverkin.
Martin Lawrence og Will Smith fara með aðalhlutverkin.
Fimmtán árum eftir að Bad Boys kom út er orðið ljóst að þriðja myndin er á leiðinni í kvikmyndahús.

Þetta staðfestu þeir Will Smith og Martin Lawrence á Instagram-reikningi Smith.

„Ég er að segja ykkur það, þetta er staðfest. Bad Boys 3 er að fara koma út,“ segir Will Smith á Instagram.

Bad Boys kom út árið 1995 og seinni myndin síðan árið 2003. Báðar myndirnar voru mjög vinsælar en þær fjölluðu um lögreglumennina Marcus Burnett og Mike Lowrey.

Hér að neðan má sjá færslu Smith.

 
 
 
View this post on Instagram
It's been a LOOOONG time Coming. But now it's Here! @BadBoys For Life We back!! @martinlawrence

A post shared by Will Smith (@willsmith) on Nov 1, 2018 at 10:48am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×