Golf

Birgir Leifur og Guðrún standa vel að vígi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birgir Leifur mundar pútterinn.
Birgir Leifur mundar pútterinn. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson er í góðum málum eftir tvo hringi á öðru stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék annan hringinn í dag á tveimur höggum undir pari.

Eftir frábæran hring í gær er Birgir Leifur samtals á átta höggum undir pari og er jafn í níunda sæti.

Það er Birgi hins vegar til ógæfu að margir kylfingar voru að leika mjög vel í dag og því færist hann neðar í töflunni, hann var jafn í fimmta sætinu eftir fyrsta daginn.

Á sama stigi en öðrum velli átti Haraldur Franklín Magnús góðan dag, spilaði annan hringinn á þremur höggum undir pari og er jafn í 35. sæti.

Gert er ráð fyrir að efstu tuttugu á hverjum velli komist áfram svo Birgir Leifur er í fínum málum en Haraldur þarf aðeins að bæta sig á seinni hringjunum tveimur.



Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar í kvennaflokki og komst upp í 16. sætið með því að leika á einu höggi undir pari á þriðja hringnum í dag.

Hún er samtals á sex höggum yfir pari í mótinu þar sem skorið er frekar hátt. 25 efstu á þessu móti komast í loka úrtökumótið og er Guðrún því í mjög góðum málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×