Fótbolti

Tilkynna leikmannahópinn í vikunni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Erik Hamrén brosmildur á blaðamannafundi í KSÍ.
Erik Hamrén brosmildur á blaðamannafundi í KSÍ. Fréttablaðið/ÞÓRSTEINN
Erik Hamrén og Freyr Alexandersson munu í vikunni tilkynna hvaða leikmenn þeir taka í leiki karlalandsliðsins gegn Belgíu og Katar sem eru fram undan. 

Íslenska landsliðið hittist næsta mánudag í Belgíu þar sem undirbúningur hefst fyrir lokaleikinn í Þjóðadeild UEFA gegn heimamönnum. Ísland er enn án stiga eftir þrjá leiki, þar á meðal 0-3 sigur gegn Belgum á heimavelli í október. Þá bíður íslenska landsliðið enn eftir fyrsta sigrinum undir stjórn hins sænska Eriks Hamrén sem tók við liðinu af Heimi Hallgrímssyni.

Eftir leikinn gegn Belgíu mun íslenska liðið mæta landsliði Katar í æfingarleik.

Verður það annar æfingarleikur Íslands gegn Katar á rúmu ári síðan eftir 1-1 jafntefli í Doha í nóvember síðastliðnum.

Eru þetta síðustu leikir ársins hjá íslenska landsliðinu áður en dregið verður í riðlakeppni undankeppni Evrópumótsins 2020 í Dublin í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×