Innlent

Slagsmálin á Bakka: Segir hinn hafa barið sig ítrekað og af miklu afli með túbusjónvarpi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mennirnir starfa báðir í kísilveri PCC á Bakka við Húsavík.
Mennirnir starfa báðir í kísilveri PCC á Bakka við Húsavík. Fréttablaðið/Anton Brink
Annar þeirra tveggja pólsku starfsmanna PCC á Bakka við Húsavík sem úrskurðaðir voru í farbann vegna slagsmála sín á milli á laugardagskvöld er grunaður um að hafa lamið hinn með litlu túbusjónvarpi sex til sjö sinnum í andlit eða höfuð af miklu afli. Mennirnir eru báðir grunaðir um stórfellda líkamsáras gegn hvor öðrum.

Þetta kemur fram í farbannsúrskurðum yfir mönnunum sem fréttastofa hefur undir höndum. Mennirnir voru úrskurðaðir í þriggja mánaða farbann í gær en slagsmálin áttu sér stað í vistarverum PCC á Bakka við Húsavík. Mennirnir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri á laugardaginn og handteknir eftir að hafa verið útskrifaðir þaðan. Í úrskurðunum kemur fram að þeir hafi báðir verið með töluverða áverka, annar hafi hlotið mikla áverka á andliti, hinn hafi höfuðkúpubrotnað.

Í farbannsúrskurðunum yfir mönnunum tveimur er aðdragandi slagsmálanna rakinn samkvæmt frásögn þess sem segist hafa orðið fyrir barsmíðunum með túbusjónvarpinu. Í úrskurðunum segir að hinn segist lýsa atburðarrásinni „eitthvað á annan veg“ en aðallega muni hann ekkert eftir atvikum málsins. 

Sagði hinn hafa haft horn í síðu hans frá því að hann hóf störf

Í frásögn mannsins kemur fram að hann hafi hafið störf hjá PCC í september og að vinnufélaginn hafi haft horn í síðu hans frá því að hann hóf störf.

Þrátt fyrir að hafa kvartað til verkstjóra hafi framkoma vinnufélagans ekki batnað og svo virðist sem að soðið hafi upp úr á milli vinnufélaganna á laugardaginn. Þá sat annar þeirra að drykkju ásamt öðrum vinnufélögum í setustofu húsnæðisins þar sem þeir hafa aðstöðu. Þegar hinn gekk framhjá þeim kallaði sá sem sat að drykkju hann illum nöfnum.

Mættust þeir síðar á gangi svefnskála húsnæðisins þar sem annar þeirra slengdi öxlinni í hinn. Hófust ryskingar á milli þeirra sem enduðu þegar aðrir viðstaddir gengu á milli þeirra. Eftir það sagðist sá sem var ekki við drykkju hafa farið í herbergi sitt til þess að fara að sofa enda hafi hann átt að mæta til vinnu síðar um kvöldið. 

Mennirnir voru handteknir þegar þeir útskrifuðust af Sjúkrahúsinu á Akureyri.Mynd/Kristján J.

Taldi sig vera að berjast fyrir lífi sínu

Sagðist hann hins vegar hafa verið hálfsofandi um 20-30 mínútum síðar er vinnufélaginn laumaðist inn í herbergi til hans og barði hann ítrekað með hnefum. Bar hinn þá hendur fyrir sér en við það tók vinnufélaginn lítið túbusjónvarp sem var í herberginu og barði hinn sex til sjö sinnum í andlit eða höfuð af miklu afli.

Sagðist maðurinn hafa reynt að „taka á móti eins og hann hafi getað“ en í átökunum féllu þeir úr rúminu sem brotnaði í átökunum. Tók hann þá fót af rúminu til þess að freista þess að koma vinnfélaganum úr herberginu. Sagðist maðurinn á þessum tímapunkti hafa verið að berjast fyrir lífi sínu.

Mennirnir eru sem fyrr segir báðir grunaðir um stórfellda líkamsárás á hvor öðrum en slík brot varða fangelsi allt að sextán árum. Í farbannsúrskurðinum segir að mennirnir séu pólskir ríkisborgarar sem báðir séu í tímabundinni vinnu hér á landi, því sé talin verulega hætta á því þeir láti sig hverfa af landi brott áður en að rannsókn málsins ljúki.

Voru mennirnir úrskurðaðir í farbann til 1. febrúar næstkomandi.


Tengdar fréttir

Tveir starfsmenn PCC á Bakka í farbann

Tveir erlendir starfsmenn kísilvers PCC á Bakka við Húsavík voru í gærkvöldi úrskurðaðir í allt að þriggja mánaða farbann, í héraðsdómi Norðurlands eystra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×