Lífið

Vinnur hjá WOW Air og með einn sjötugan í nýju myndbandi Áttunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Randver Þorláksson fer með hlutverk í myndbandinu.
Randver Þorláksson fer með hlutverk í myndbandinu.
Samfélagsmiðlahópurinn Áttan gaf í gær út nýtt myndband við lagið L8 þar sem þau Sólborg Guðbrandsdóttir, Hildur Sif Guðmundsdóttir og Þórir Geir Guðmundsson fara mikinn.

Í myndbandinu er meðal annars fylgst með flugfreyju WOWair sem er nemandi í HR og í sambandi með sjötugum karlmanni. Myndbandið kom út daginn áður en Icelandair keypti WOWair.

Orri Einarsson sá um leikstjórn og var myndataka og klipping í höndum Grétars Arnar Guðmundssonar. Eins og allir vita er lagið NEINEI það allra vinsælasta sem Áttan hefur gefið út en spurning hvernig þetta lag fer í landann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×