Handbolti

Basti skilur hvers vegna dæmdur var leikaraskapur á Tuma Stein

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Basti fer eftir reglubókstaf laganna
Basti fer eftir reglubókstaf laganna S2 Sport
Dómari leiks Aftureldingar og FH gerði rétt í því að dæma leikaraskap á Tuma Stein Rúnarsson að mati Sebastians Alexanderssonar, sérfræðings Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport.

Dómgæslan var mikið rædd á samfélagsmiðlum í gær og þá sérstaklega leikaraskapur Tuma Steins Rúnarssonar. Tumi fékk tveggja mínútna brottvísun fyrir leikaraskap undir lok leiksins en eftir að hafa grandskoðað atvikið voru sérfræðingar Seinni bylgjunnar komnir á þá skoðun að Ágúst Birgisson hafi brotið á Tuma.

„Ég skal viðurkenna það að þegar ég horfði á þetta þá hélt ég að Tumi Steinn væri að fara að vinna Grímuna,“ sagði þáttastjórnandinn Tómas Þór Þórðarson.

„Síðan fór maður að skoða þetta aftur, sem er lúxus sem dómararnir hafa ekki.“

Sebastian Alexandersson er með reglurnar á hreinu og hann hafði þetta að segja um málið: „Ef þú ert dómari þá er tvennt sem þú þarft að gera. Dæmdu það sem þú sérð og dæmdu eftir reglunum.“

„Ef að honum finnst hann sjá það eins og þetta sé leikaraskapur þá á hann að reka hann út af fyrir leikaraskap. Síðan getur hann eins og leikmenn eða þjálfarar gert sín mistök.“

Það hefði síðan átt að verða uppi fótur og fit augnablikum síðar þegar Afturelding spilaði með of marga leikmenn inni á vellinum í einu, en enginn sem kom að leiknum áttaði sig á því.

Tómas Þór og félagar fóru vel yfir þann sirkus og má sjá það í brotinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×