Handbolti

Seinni bylgjan: Táruðust úr hlátri yfir tilþrifum Óla Stef

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Basti léttur en Jóhann Gunnar með tárin í augunum.
Basti léttur en Jóhann Gunnar með tárin í augunum.
Það vantaði ekki stemninguna í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport í gær. Ekki síst þegar liðurinn skemmtilegi „Le Kock Hætt'essu“ fór í loftið í lok þáttar.

Venju samkvæmt þá var margt mjög fyndið að sjá í klipunni enda mistökin mörg í hröðum leik.

Það kom þó strákunum í þættinum líklega nokkuð á óvart þegar Ólafur Stefánsson birtist í lok klippunnar þar sem hann var að skemmta eldri borgurum í KR-heimilinu.

Þá táruðust menn úr hlátri. Svo mikið að ekki var hægt að kveðja. Sjón er sögu ríkari.



 

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×