Lífið

Grínistinn með rangeygðu stjórnmálamennina hrellti líka Íslandsbanka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Erlingi Sigvaldasyni tókst að hrella bæði stjórnmálamenn og heila bankastofnun.
Erlingi Sigvaldasyni tókst að hrella bæði stjórnmálamenn og heila bankastofnun.
Þrátt fyrir að vera aðeins átján ára gamall hefur framhaldsskólanemanum Erlingi Sigvaldasyni tekist að hrella bæði stjórnmálamenn og heila bankastofnun með uppátækjum sínum á netinu.

Dagatal með völdu stjórnmálafólki í örlítið breyttri mynd rýkur út eins og heitar lummur og gervi-Twitter reikningur Íslandsbanka vakti vægast sagt athygli fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Taka vel í framtakið

Erlingur greindi frá því í tísti á dögunum að hann hefði til sölu dagatöl með rangeygðum stjórnmálamönnum. Til stóð að bjóða upp á 30 eintök, en uppátækið vakti fljótt mikla athygli og ákvað hann því að margfalda framboðið.

Erlingur segir að þeir tólf stjórnmálamenn sem rötuðu í dagatalið séu einfaldlega sínir uppáhalds. Þeir hafi almennt tekið vel í framtakið og einn þeirra hefur þegar tryggt sér eintak.

„Það er Andrés Ingi, hann er kominn á listann. Ég tekk hann „next level“, hann er sá eini sem ég lagfæri bæði augun á,“ segir Erlingur.

„Stunda vændi eða Siggi frændi?“

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem grínverkefni Erlings vekur athygli, en fyrir um ári síðan tók hann herferð Íslandsbanka og sneri rækilega út úr henni á nýjum Twitter aðgangi.

Sjá einnig:Falskur aðgangur Íslandsbanka á Twitter gerir grín að auglýsingaherferð bankans

Í herferðinni voru borgarar hvattir til að spara peninga, með auglýsingum á strætóskýlum á borð við „Ísbúð eða íbúð?“. Á Twitter reikningi Erlings var aftur á móti farið í umtalsvert grófara rím á borð við „Drekka safa eða kýla afa?“ og annað í þeim dúr.

„Svo var „Stunda vændi eða Siggi frændi?“. Þetta var svolítið gróft, en þetta sló í gegn,“ segir Erlingur.



Erlingur verður einn viðmælenda Íslands í dag, klukkan 18:55 í kvöld, strax eftir kvöldfréttir.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×