Kane hélt Tottenham á lífi í Meistaradeildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Harry Kane fagnar sigurmarkinu.
Harry Kane fagnar sigurmarkinu. Vísir/Getty
Tottenham vann frábæran endurkomusigur gegn PSV á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Eftir að hafa lent 1-0 undir unnu Tottenham afar mikilvægan 2-1 sigur.

Það voru ekki liðnar nema 63 sekúndur er fyrsta markið kom. Luuk de Jong stangaði þá hornspyrnu Gaston Pereiro í netið og PSV komið yfir.

Eftir markið sóttu heimamenn í Tottenham látlaust og það bar ekki árangur fyrr en tólf mínútum fyrir leikslok er Harry Kane jafnaði metin en hann hafði fengið færin fyrr í leiknum til þess að jafna.

Leikmenn Tottenham voru ekki hættir og sigurmarkið kom ekki úr óvæntri átt. Fyrirliðinn Kane var þá aftur á ferðinni en eftir nokkuð lausan skalla þá lak boltinn yfir línuna. 2-1 sigur Tottenham.

Sigurinn heldur Tottenham á lífi í riðlinum. Liðið er nú í þriðja sætinu með fjögur stig en Inter er í öðru sætinu með sjö. Barcelona er á toppnum með tíu og PSV á botninum með eitt.

Tvær umferðir eru eftir af riðlinum en næst fær Tottenham Inter í heimsókn á Wembley áður en liðið ferðast til Barcelona í síðustu umferðinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira