Innlent

Vilja að Samkeppniseftirlitið skoði samning borgarinnar við Hlemm Mathöll

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mathöllin við Hlemm var opnuð í ágúst árið 2017.
Mathöllin við Hlemm var opnuð í ágúst árið 2017. Vísir/Vilhelm
Félag atvinnurekenda, FA, hefur farið fram á að Samkeppniseftirlitið taki til skoðunar samning Reykjavíkurborgar við rekstraraðila Hlemms Mathallar ehf., með tilliti til þess hvort hann feli í sér opinberan styrk sem raski samkeppni á markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA.

Sjá einnig: Tillögu um óháða rannsókn á Hlemmi mathöll vísað frá

Erindið er sent Samkeppniseftirlitinu í framhaldi af kvörtunum nokkurra félagsmanna FA. Vísað er til þess að þegar auglýst var eftir rekstraraðila fyrir veitinga- og matarmarkað á Hlemmi árið 2015 var tekið fram í auglýsingu að samið yrði „nánar um leigu fyrir húsið á grundvelli markaðsleigu á nærliggjandi svæði og mögulegan kostnað við breytingar á húsnæðinu.“

Virðast leigja á þriðjungi markaðsleigu

Samkvæmt upplýsingum sem FA fékk frá Reykjavíkurborg var leigan á húsnæðinu miðað við verðlag í október 2018  kr. 1.209.254 á mánuði eða kr. 14.511.049 á ársgrundvelli. Samkvæmt leigusamningnum er hið leigða húsnæði 529 fm og leiguverð á fermetra því tæpar 2.300 krónur.

Í tilkynningu segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem FA hafi aflað sér sé markaðsleiga í nágrenni Mathallarinnar að jafnaði um þreföld sú fjárhæð sem leigusamningur um mathöllina kveður á um.

„Virðist rekstraraðili mathallarinnar þannig fá húsnæðið til leigu á þriðjungi markaðsleigu, þvert á þau áform sem fram komu í auglýsingu borgarinnar frá 12. júní 2015, auk heimildar til framleigu,“ segir í erindi FA til Samkeppniseftirlitsins.

 

Geti ekki með nokkrum hætti staðið undir kostnaði

Þá hefur komið fram að áætlaður kostnaður borgarinnar við breytingar á húsnæðinu var í upphafi rúmlega 107 milljónir en heildarkostnaður varð rúmlega 308 milljónir. 

Í erindi FA segir að ljóst sé að hið umsamda leiguverð geti ekki með nokkrum hætti staðið undir kostnaði borgarinnar við framangreindar framkvæmdir.

„Óhætt mun að fullyrða að ekkert leigufélag á almennum markaði hefði getað leyft sér slíkan framúrakstur í kostnaði vegna framkvæmda, a.m.k. ekki án þess að taka upp leigusamninga,“ segir jafnframt í erindinu. 

Sjá einnig: Mathöllin fær að leigja Hlemm á kostakjörum

Því sé það mat félagsins að leigusamningur Reykjavíkurborgar við Hlemm – Mathöll ehf. feli í sér opinberan styrk við einkaaðila í samkeppnisrekstri sem raski samkeppni á markaði.

„FA fer þess á leit við Samkeppniseftirlitið að taka til skoðunar hvort leigusamningur Reykjavíkurborgar við rekstraraðila Hlemms Mathallar ehf. raski samkeppni. Stofnunin beini eftir atvikum tilmælum til borgarinnar um úrbætur.“

Erindi FA til Samkeppniseftirlitsins má nálgast í heild hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×