Erlent

Fjölbreyttir frambjóðendur náðu kjöri

Kjartan Kjartansson skrifar
Sharice Davids fagnaði með stuðningsmönnum sínum í nótt. Hún deilir heiðrinum að vera fyrsta frumbyggjakonan til að ná sæti í fulltrúadeildinni og verður fyrsti samkynhneigði fulltrúadeildarþingmaður Kansas.
Sharice Davids fagnaði með stuðningsmönnum sínum í nótt. Hún deilir heiðrinum að vera fyrsta frumbyggjakonan til að ná sæti í fulltrúadeildinni og verður fyrsti samkynhneigði fulltrúadeildarþingmaður Kansas. Vísir/Getty
Frumbyggjar, múslimakonur og hinsegin fólk voru á meðal þeirra sem brutu blað í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Konur unnu einnig á þó að enn halli verulega á þær í báðum deildum Bandaríkjaþings.

Úrslit voru víða söguleg í bandarísku þing- og ríkisstjórakosningunum sem fóru fram í gær.  Demókratar unnu meirihluta í fulltrúadeildinni en repúblikanar héldu velli í öldungadeildinni og bættu við sig sætum þar. New York Times og Washington Post hafa tekið saman lista yfir nokkra frambjóðendur sem náðu kjöri fyrir flokkana sem eru brautryðjendur þjóðfélagshópa sem hafa fram að þessu ekki átt sér marga ef nokkra fulltrúa í æðstu embættum landsins eða fyrir hönd ríkja sinna.

Sharice Davids og Debra Haaland, tvær konur sem buðu sig fram fyrir hönd Demókrataflokksins, deila þeim heiðri að vera fyrstu frumbyggjakonurnar til þess að ná kjöri í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Davids, sem er frá Kansas, er jafnframt fyrsta samkynhneigða konan sem nær kjöri fyrir ríkið.

Í kosningabaráttunni bar Haaland, frá Nýju-Mexíkó, umdeildan aðskilnað fjölskyldna á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó meðal annars saman við það þegar börn frumbyggja Norður-Ameríku voru skilin frá foreldrum sínum.

Tvær múslimakonur náðu einnig kjöri til fulltrúadeildarinnar í fyrsta skipti, þær Ilhan Omar, demókrati frá Minnesóta, og Rashida Tlaib, demókrati frá Michigan. Omar er fyrsti Bandaríkjamaðurinn af sómölskum ættum sem er kosinn á þing en Tlaib er af palestínskum ættum.

Í Colorado varð Jared Polis fyrsti opinskátt samkynhneigði karlmaðurinn til þess að ná kjöri sem ríkisstjóri í Bandaríkjunum þegar hann hrósaði sigri í nótt. Hann kemur einnig úr röðum Demókrataflokksins.

Ilham Omar á rætur sínar að rekja til Sómalíu. Hún varð fyrsta múslimakonan til að vinna sæti í fulltrúadeildinni ásamt Rashidu Tlaib í Michigan.Vísir/Getty

Konur réttu hlut sinn en enn aðeins innan við fjórðungur þingmanna

Lengi hefur hallað á konur í bandarískum stjórnmálum. Konur unnu þó verulega á í kosningunum til fulltrúadeildarinnar og er nú útlit fyrir að hundrað þeirra sitji á þingi á næsta kjörtímabili. Þær hafa þá aldrei verið fleiri. Þær eru engu að síður í minnihluta í fulltrúadeildinni þar sem 435 þingmenn eiga sæti.

Alexandria Ocasio-Cortez varð yngsta konan til að ná kjöri til fulltrúadeildarinnar. Hún er 29 ára gömul og tilheyrir vinstri armi Demókrataflokksins. Hún velti sitjandi þingmanni flokksins í 14. kjördæmi New York óvænt úr stóli í forvali í sumar. Hún hefur aldrei gegnt embætti sem kjörinn fulltrúi áður.

Þá kusu Texasbúar sér konur af rómönsk-amerískum ættum á þing í fyrsta skipti. Þær Veronica Escobar og Sylvia Garcia náðu báðar kjöri í einu stærsta ríki Bandaríkjanna þar sem nærri því 40% íbúa er af spænskum eða rómansk-amerískum ættum.

Marsha Blackburn, frambjóðandi repúblikana, varð fyrsta konan til að ná kjöri til öldungadeildarinnar í Tennessee. Hún er einarður andstæðingur fóstureyðinga og er harður stuðningsmaður Donalds Trump forseta.

Konur komust einnig í ríkisstjórasetrið í nokkrum ríkjum í fyrsta skipti í gær. Kristi Noem, þingkona repúblikana, náði kjöri sem ríkisstjóri Suður-Dakóta og Janet Mills, dómsmálaráðherra í Maine, vann sigur fyrir demókrata þar.

Marsha Blackburn lék á als oddi á kosningavöku í gær. Hún er fyrsta konan sem kosin er til öldungadeildarinnar í Tennessee.Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Útlit fyrir miklar deilur næstu tvö árin

Repúblikanaflokkurinn hefur bætt við nauman meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í fulltrúadeildinni.

Dalurinn veikist

Bandaríkjadalurinn hefur lækkað frá opnun markaða í morgun.

Sviptingar í ríkisstjórakosningum

Repúblikanar unnu sigra í tveimur ríkjum þar sem demókratar höfðu gert sér vonir um sigur. Í Wisconsin náðu demókratar að fella umdeildan ríkisstjóra repúblikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×