Innlent

Forsætisráðherra segir nauðsynlegt að greina stöðu barna á Íslandi

Heimir Már Pétursson skrifar
Forsætisráðherra segir nauðsynlegt að afla frekari gagna um stöðu og líðan barna bæði út frá kyni þeirra og samfélagslegri stöðu. Þingmaður Flokks fólksins segir ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af stöðu drengja í íslensku samfélagi.

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksinsSkjáskot úr frétt
Karl Gauti Hjaltason þingmaður Flokks fólksins dró upp dökka mynd af stöðu og líðan drengja á Íslandi í sérstakri umræðu sem hann var upphafsmaður að á Alþingi í dag. Ungir menn og drengir virtust sannarlega eiga í mikilli tilvistarkreppu.

„Ef litið er til tíðni sjálfsvíga þá er hlutfall karla 87 prósent á árinu 2015 í yngsta aldurshópnum fimmtán til þrjátíu og fimm ára. Komið hefur fram að lestrarvandi drengja við útskrift úr grunnskólanum er geigvænlegur. Eða sú staðreynd að ungir menn eru einungis 30 prósent þeirra sem ljúka meistaragráðu úr háskólanum,“ sagði Karl Gauti.

Karlmenn væru einungis 36 prósent þeirra sem stunduðu háskólanám, notkun hegðunarlyfja væri helmingi algengari á meðal drengja en stúlkna í grunnskólanum, brottfall drengja úr framhaldsskólum væri mun meira en hjá stúlkum og nýgengni örorku væri meiri meðal ungra karla en kvenna. Það væri greinilega eitthvað mikið að.

„Á þessari upptalningu, sem þó er einungis sýnishorn af þeim staðreyndum sem blasa við okkur um ástandið á meðal hins unga karlkyns, sést vel að við svo búið verður ekki unað. Við getum ekki sætt okkur við að ungir drengir og ungir menn finni sig ekki og líði illa og við missum þá í aðgerðarleysi, afbrot, vímuefnaneyslu, örorku og því miður jafnvel sjálfsvíg,“ sagði Karl Gauti.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.Vísir/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði grunnforsendu þessara mála að samfélagið byggði á ákveðnu kynjakerfi þar sem bæði neikvæð og jákvæð áhrif þess birtust með ólíkum hætti. Hún minnti á frumvarp um umboðsmann barna.

„Í því frumvarpi sem liggur hér fyrir þinginu er gert ráð fyrir að umboðsmaður barna fái aukið hlutverk við að afla gagna um stöðu barna. Bæði drengja og stúlkna. Við þurfum að afla þessarra gagna með heildstæðum hætti þannig að við getum tekið góðar ákvarðanir til framtíðar,“ sagði forsætisráðherra.

Hún deildi áhyggjum með þingmanninum vegna ávísana lyfja til barna.

„Íslensk börn samkvæmt upplýsingum frá landlækni fá meira ávísað af tauga- og geðlyfjum en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum. Það á bæði við um stúlkur og drengi. Drengir eru líklegri til að fá slík lyf en stúlkur, jafnt hér á landi sem og á Norðurlöndum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.


Tengdar fréttir

Logi segir framlög til geðheilbrigðismála ekki duga til

Formaður Samfylkingarinnar segir það viðbótarframlag til geðheilbrigðismála ekki duga til að bregðast við þeim mikla vanda sem steðjar að ungu fólki sérstaklega. Það væri sláandi hvað stór hluti ungs fólks reyndi að svipta sig lífi og hvað stór hluti fólks væru öryrkjar vegna geðrænna vandamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×