Viðskipti erlent

Jólaauglýsing Iceland bönnuð í Bretlandi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Auglýsingin er í raun stuttmynd frá Greenpeace sem stórleikkonan Emma Thompson talsetti.
Auglýsingin er í raun stuttmynd frá Greenpeace sem stórleikkonan Emma Thompson talsetti. Skjáskot
Jólaauglýsing verslunarkeðjunnar Iceland hefur verið bönnuð í Bretlandi vegna þess að hún þykir stríða gegn reglum um pólitískar auglýsingar.

Auglýsingin er í raun stutt teiknimynd framleidd af Greenpeace um umhverfisáhrif pálmaolíuframleiðslu, en pálmaolíu má finna í ýmsum mat- og hreinlætisvörum.

Iceland tilkynnti fyrr á árinu að keðjan hygðist hætta allri notkun á pálmaolíu við framleiðslu matvæla sem merkt eru fyrirtækinu. Framleiðsla á pálmaolíu veldur svo mikilli röskun á kjörlendi órangútana að dýrategundin er nú í mikilli útrýmingarhættu.

Í auglýsingunni rekst ung stúlka á órangútan í svefnherberginu sínu og spyrst fyrir um hvers vegna í ósköpunum apinn sé þar. Hann svarar því að það sé mannvera í skóginum sínum og lýsir áhrifum framleiðslunnar á líf hans í frumskóginum.

Clearcast, sem sér um að kanna auglýsingar áður en þær fara í almenna sýningu í Bretlandi, sögðu auglýsinguna brjóta gegn banni á pólitískum auglýsingum frá árinu 2003.

„Þetta var mynd sem Greenpeace gerði sem Emma Thompson talsetti,“ sagði Malcolm Walker, stofnandi Iceland í samtali við The Guardian.

„Við fengum leyfi til að nota hana og fjarlægja merki Greenpeace og nota hana sem jólaauglýsingu,“ sagði hann og bætti við að auglýsingin hefði líklega slegið út jólaauglýsingu verslunarkeðjunnar John Lewis sem vekur yfirleitt mikla athygli um allan heim.

Iceland mun engu að síður birta stuttar auglýsingar þar sem áhersla er lögð á vörur sem innihalda ekki pálmaolíu.

Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×