Viðskipti innlent

Segir ásakanir Hildar til marks um einbeittan vilja til útúrsnúnings

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Fréttablaðið/Valli
Gylfi Magnússon, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, telur að yfirlýsingar borgarfulltrúans Hildar Björnsdóttur um lántöku OR feli í sér einbeittan vilja að hennar hálfu til útúrsnúnings. Það sé eðlilegur liður í fjárstýringu að taka lán en OR hafi greitt niður meira en tekið var af lánum. Það væri því nærtækara að hans mati að fagna bættri fjárhagsstöðu OR, fremur en að brigsla stjórnarmönnum um lántökur til að standa undir arðgreiðslum.

Hildur sagði í samtali við Fréttablaðið að sér þætti alvarlegt mál að Orkuveita Reykjavíkur slái dýr lán „gagngert í þeim tilgangi að greiða arð í hendur stjórnmálamanna.“ Var þar vísað til til láns sem Orkuveitan tók upp á nærri þrjá milljarða króna hjá Íslandsbanka í lok árs 2016 en bankalánið átti þátt í því að veltufjárhlutfall félagsins hækkaði þannig að skilyrðum fyrir arðgreiðslu var fullnægt.

Sjá einnig: Segir Orkuveituna slá dýr lán fyrir arðgreiðslu

Í færslu á Facebook gengst varaformaðurinn Gylfi við því að vissulega hafi stjórn OR tekið ný lán. Það sé hins vegar gert á hverju ári og sé „eðlilegur liður í fjárstýringu.“ Í færslu sinni rekur hann fjárhagsstöðu OR og bendir á að hagnaður Orkuveitunnar árið 2016, þegar fyrrnefnt lán var tekið, hafi verið 13,4 milljarðar og að eigið fé hafi aukist um 6,7 milljarða þetta ár.

„Síðan var greiddur út arður vegna ársins upp á 750 milljónir. Það er ansi lágt endurgjald fyrir að nýta 121,5 milljarð af eigin fé – 0,6%! Arðurinn var einungis 5,6% af hagnaði ársins. Allt liggur þetta fyrir opinberlega og hefur gert í meira en ár. Að túlka þetta sem svo að OR hafi tekið lán til að greiða út arð kallar á einstaklega einbeittan vilja til útúrsnúnings,“ skrifar Gylfi í færslu sinni sem sjá má hér að neðan.

Sjá einnig: Formaður stjórnar OR segir lántökur og arðgreiðslur í samræmi við eigendastefnu

Í tilkynningu til fjölmiðla í morgun segir Brynhildur Davíðsdóttir, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, að eigendastefna fyrirtækisins hafi verið samþykkt einróma af öllum sveitarstjórnunum þremur sem eiga OR. Stefnan kveði á um að fyrirtækið eigi að skila hagnaði og hafi átt mikinn þátt í því að tekist hafi að reisa fjárhag fyrirtækisins við.

„Arðgreiðslur eru því eðlilegur þáttur útgjalda Orkuveitu Reykjavíkur og er gert ráð fyrir þeim í fjárhagsspám OR, sem eru öllum aðgengilegar. Fjármögnun Orkuveitu Reykjavíkur, þar á meðal lánsfjármögnun, tekur mið af fyrirsjáanlegum tekjum og gjöldum og fjárhagslegum markmiðum í rekstrinum. Sú lántaka, sem sætir gagnrýni í fjölmiðlum í dag, var í fullu samræmi við allt ofangreint,“ segir Brynhildur í tilkynningunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×