Innlent

Milljón til að lagfæra leiði Jóns Magnússonar

Atli Ísleifsson skrifar
Úr Hólavallakirkjugarði.
Úr Hólavallakirkjugarði. vísir/vilhelm
Ríkisstjórnin og skrifstofa Alþingis hafa ákveðið að leggja eina milljón króna af mörkum til að heiðra minningu Jóns Magnússonar sem var forsætisráðherra þegar Ísland öðlaðist fullveldi 1. desember 1918.

Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, segir í samtali við Vísi að féð skiptist fant milli skrifstofu alþingis og forsætisráðuneytisins, en féð er tekið af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar. Stefnt sé að því að klára verkið fyrir 1. desember næstkomandi.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að Minjastofnun Íslands hafi verið falið að lagfæra leiði og legstein Jóns í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.

„Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er ásigkomulag legsteinsins og leiðisins ekki gott. Áletruð plata á legsteininum var fjarlægð fyrir nokkru vegna þess að hún var farin að brotna og legsteinninn sjálfur er laskaður. Legsteinn Jóns stendur við hlið legsteins Péturs biskups Péturssonar og eru þeir um flest nákvæmlega eins. Saman fara þar einhverjir íburðarmestu minnisvarðar í Hólavallagarði,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×