Liverpool á toppinn með öruggum sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Shaqiri skoraði annað mark Liverpool
Shaqiri skoraði annað mark Liverpool vísir/getty
Liverpool endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar af Manchester City með sigri á nýliðum Fulham í dag.

Það var fátt sem benti til annars en að Liverpool ætti nokkuð auðveldan dag fyrir höndum, Liverpool enn ósigrað í deildinni á meðan Fulham hafði tapað síðustu sex leikjum og sat á botni deildarinnar.

Leikurinn byrjaði eins og við mátti búast, heimamenn voru sprækir fram á við og opnunarmark þeirra virtist liggja í loftinu. Gestirnir frá höfuðborginni vörðust hins vegar vel og náðu að halda aftur af sóknarafli Liverpool.

Undir lok fyrri hálfleiks skallaði Aleksandar Mitrovic boltann í netið eftir fyrirgjöf upp úr hornspyrnu Fulham. Dómari leiksins dæmdi rangstöðu sem leikmenn Fulham voru ekki sáttir við.

Alisson Becker var fljótur að taka aukaspyrnuna og koma boltanum í leik, fann Trent Alexander-Arnold sem átti sendingu upp völlinn þar sem Mohamed Salah var á sprettinum. Salah komst einn á móti Sergio Rico í marki Fulham og þá þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Liverpool komið yfir 14 sekúndum eftir að Mitrovic setti boltann í net Liverpool.

Salah kemur Liverpool yfirvísir/getty
Endursýningar sýna að rangstaðan var mjög tæp og hún er umdeild, en sama hversu mikið menn deila um hana er staðan sú að dómarinn dæmdi og hans orð standa.

Svekkelsi leikmanna Fulham hefur verið mikið í búningsherberginu í hálfleik, kannski of mikið því gestirnir mættu ekki til leiks í seinni hálfleik. Þar var bara eitt lið á vellinum og aldrei spurning hvernig færi.

Heimamenn náðu aðeins að bæta við einu marki, það kom snemma í seinni hálfleiknum. Andrew Robertson átti frábæra sendingu inn á teiginn þar sem Xherdan Shaqiri var aleinn í teignum og þakkaði fyrir sig með því að skora fyrir Liverpool.

Rauðklæddir Liverpoolmenn fengu fjöldan allan af færum til þess að bæta við en þriðja markið kom ekki, lokatölur 2-0.

Liverpool er því á toppnum, í það minnsta þar til Manchester City mætir Manchester Untied seinna í dag í stórleik umferðarinnar. Fulham situr sem fastast á botni deildarinnar og útlitið svart þar á bæ.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira