Innlent

Meirihluti hlyntur stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Óli Haraldsson formaður þverpólitískrar nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands hélt erindi á umhverfisþingi í dag.
Óli Haraldsson formaður þverpólitískrar nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands hélt erindi á umhverfisþingi í dag. Mynd/Stjórnarráðið
63% almennings á Íslandi er fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Ferðamenn nefna sem aðdráttarafl hálendisins að þar sé einstök náttúra. Þverpólitísk nefnd vinnur nú að því að undirbúa stofnun miðhálendisþjóðgarðs. Þetta er meðal þess sem hefur komið fram á Umhverfisþingi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra boðaði til og stendur nú yfir.

Tillaga um miðhálendisþjóðgarð er skrifuð í sáttmála ríkisstjórnar Íslands og fram kom á þinginu að þverpólitísk nefnd sem umhverfisráðherra skipaði síðastliðið vor vinnur nú að framgangi málsins. Samkvæmt Óla Halldórssyni formanni nefndarinnar, er nefndin byrjuð að fjalla um mörk þjóðgarðsins og að stefnt væri að samráðsfundum með sveitarfélögum og nytjaréttarhöfum. Nefndin mun skila af sér tillögu að lagafrumvarpi næsta haust.

Michaël Bishop kynnti niðurstöður spurningakönnunar sem var unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands en þar kom fram að tæplega 63% af þeim sem tóku afstöðu eru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu en tæplega 10% voru andvíg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×