Körfubolti

Bucks sigraði uppgjör toppliðanna | 52 stig frá Klay Thompson

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Klay Thompson minnti rækilega á sig
Klay Thompson minnti rækilega á sig Vísir/Getty
Milwaukee Bucks fékk Toronto Raptors í heimsókn í nótt í uppgjöri toppliðanna í NBA körfuboltanum en bæði lið höfðu unnið sex fyrstu leiki síni áður en kom að leiknum í nótt og því ljóst að eitthvað þyrfti undan að láta.

Bæði lið léku án sinna skærustu stjörnu þar sem Giannis Antetokounmpo og Kawhi Leonard voru fjarri góðu gamni vegna smávægilegra meiðsla. 

Bucks vann nokkuð örugglega með fimmtán stiga mun, 124-109, þar sem Ersan Ilyasova var stigahæstur með 19 stig en alls skoruðu sjö leikmenn Bucks yfir 10 stig.

Klay Thompson minnti heldur betur á sig eftir að hafa byrjað mótið frekar brösulega en þessi magnaða skytta skoraði 52 stig í öruggum sigri Golden State Warriors á Chicago Bulls. Lokatölur 124-149 fyrir meisturunum sem eru búnir að vinna 7 af fyrstu 8 leikjum sínum. 

29 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar LeBron James dugðu skammt þegar Los Angeles Lakers beið lægri hlut fyrir Minnesota Timberwolves, 124-120. Sama má segja um segja um 31 stig frá Luka Doncic en Dallas Mavericks tapaði fyrir San Antonio Spurs eftir framlengdan leik, 113-108.

Úrslit næturinnar

Indiana Pacers 93-103 Portland Trail Blazers

Philadelphia 76ers 113-92 Atlanta Hawks

Miami Heat 113-123 Sacramento Kings

New York Knicks 115-96 Brooklyn Nets

Chicago Bulls 124-149 Golden State Warriors

Milwaukee Bucks 124-109 Toronto Raptors

Minnesota Timberwolves 124-120 Los Angeles Lakers

San Antonio Spurs 113-108 Dallas Mavericks

Denver Nuggets 116-111 New Orleans Pelicans

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×