Sport

Fleiri NFL leikir í London á næstu leiktíð

Arnar Geir Halldórsson skrifar
vísir/getty
Fjórir deildarleikir í bandarísku NFL deildinni verða leiknir í London, höfuðborg Englands, á næstu leiktíð en þrír leikir hafa farið fram á þjóðarleikvangnum Wembley á síðustu þremur vikum.

Philadelphia Eagles og Jacksonville Jaguars áttust við síðastliðinn sunnudag og á mánudag fór svo fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni þegar Tottenham og Manchester City áttust við en óhætt er að segja að völlurinn hafi litið skelfilega út eftir NFL leikinn.

NFL deildin hefur nú staðfest að fjórir leikir verði leiknir í Lundúnum á næstu leiktíð, tveir á Wembley en hinir tveir á nýjum leikvangi Tottenham.

Fyrsti NFL leikurinn í London fór fram árið 2007 og síðan þá hafa 24 leikir verið spilaðir í ensku höfuðborginni. Hafa 29 af 32 liðum NFL deildarinnar spilað í Lundúnum en ekki er búið að gefa út hvaða leikir verða leiknir á Englandi á næstu leiktíð.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×