Innlent

Hækkun á styrk köfnunarefnisdíoxíðs í Reykjavík

Birgir Olgeirsson skrifar
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Vísir/AFP
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, 31. október, samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg.  Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. 

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra.  Búast má við svipuðum veðuraðstæðum næstu daga.

Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi.  Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna hér. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Önnur loftgæðafarstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsett í nágrenni Egilshallar við gatnamótin Fossaleyni/Víkurvegur. Verið er að uppfæra svifrykstæki í hinn farstöðinni og hún því ekki í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×