Viðskipti innlent

Bandarískar „aðkomuhátíðir“ komnar til að vera í íslenskum verslunum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Aukning hefur orðið í sölu á vörum tengdum Valentínusardeginum og hrekkjavökunni, að sögn framkvæmdastjóra Bónuss.
Aukning hefur orðið í sölu á vörum tengdum Valentínusardeginum og hrekkjavökunni, að sögn framkvæmdastjóra Bónuss. Mynd/Samsett
Sala á vörum tengdum hrekkjavökunni, og öðrum „aðkomuhátíðum“ á Íslandi, hefur aukist gríðarlega undanfarin ár, að sögn framkvæmdastjóra Bónus. Aðrar íslenskar verslanir virðast hafa sömu sögu að segja ef marka má birgðastöðu verslana á graskerjum í aðdraganda hrekkjavökunnar.

Greint var frá því á vef Ríkisútvarpsins í vikunni að grasker væru víða uppseld á landinu en Íslendingar virðast nú skera þau út að bandarískum sið í auknum mæli. Á mánudag voru grasker til að mynda uppseld í verslunum Krónunnar, Hagkaups og Fjarðarkaupa, og nær alveg ófáanleg í verslunum Bónuss.

Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus.vísir/stefán
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir í samtali við Vísi að graskerssala hafi aukist með hverju árinu. Þá hafi einnig orðið sprenging í sölu á öðrum varningi tengdum hrekkjavökunni.

„Við höfum verið að flytja inn hrekkjavökudót, skreytingar, búninga og grímur. Það er alltaf að verða vinsælla og vinsælla.“

Þá eykst sælgætissala einnig í tengslum við „grikk eða gott“, bandarískan sið sem íslensk börn hafa tileinkað sér víða á landinu. Guðmundur hefur þó ekki nákvæmar sölutölur á reiðum höndum en segir að þrátt fyrir aukninguna sé enn ekki um gríðarlegar fjárhæðir að ræða.

En þetta er komið til að vera?

„Klárlega. Og greinilega vaxandi, fólk leggur meira upp úr búningum og skreytingum heldur en áður fyrr, það er alveg klárt.“

Guðmundur segir jafnframt aukning í sölu á vörum í tengslum við aðrar „tökuhátíðir“ frá Bandaríkjunum á borð við Valentínusardaginn.

„Það er minni aukning þar, allavega hjá okkur. Það er keypt inn fyrir þennan dag, einhver hjörtu og slíkt, en það er ekkert í líkingu við hrekkjavökuna.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×