Erlent

Standa með Dönum í deilunni vegna tilræðis írönsku leyniþjónustunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Vísir/Getty
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að Norðurlöndin sýni dönskum yfirvöldum fulla samstöðu vegna tilræðis írönsku leyniþjónustunnar á danskri jörð og greint var frá í gær.

Danskir fjölmiðlar greindu frá því að í gær að norskur ríkisborgari af írönskum uppruna hafi verið handtekinn í Svíþjóð 21. október, grunaður um að hafa aðstoðað írönsku leyniþjónustuna við að skipuleggja árás á danskri jörð.

Finn Borch Andersen, yfirmaður dönsku öryggislögreglunnar PET, útskýrði á fréttamannafundi aðgerðir lögreglunnar þann 28. september síðastliðinn, þar sem lögregla stóð fyrir umfangsmikilli aðgerð og lokaði meðal annars Eyrarsundsbrúnni. Á þeim tíma var ekki greint frá um hvað málið snerist.

Að sögn Andersen snerist málið um liðsmann ASMLA-hópsins, hreyfingar sem berst fyrir sjálfstæði Ahwaz-héraðs í suðvesturhluta Írans, sem lögregla taldi vera í hættu.

Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði í gær að brugðist yrði við vegna málsins.

Funduðu í Ósló

Guðlaugur Þór tók svo í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna á fundi Norðurlandaráðs í Ósló. Á fundinum gerði utanríkisráðherra Danmerkur grein fyrir málinu.

„Norðurlöndin sýna dönskum yfirvöldum fulla samstöðu vegna tilræðis írönsku leyniþjónustunnar, enda tilræðið árás á norrænt samfélag og þau gildi sem það stendur fyrir,“ er haft eftir Guðlaugur Þór í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ráðherrarnir samþykktu sameiginlega yfirlýsingu um málið. 


Tengdar fréttir

Íranir hugðu á árás á danskri jörð

Lögregla í Danmörku telur að útsendarar írönsku leyniþjónustunnar hafi haft í hyggju að framkvæma árás gegn fólki í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×