Formúla 1

Hamilton skildi keppendurna um titilinn eftir í reyknum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. Getty
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton getur skrifað nafn sitt í sögubækur Formúlunnar um helgina og unnið sinn fimmta heimsmeistaratitil ökuþóra á braut þar sem hann hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár.

Kappaksturinn í Austin, Texas, er fjórði síðasti kappakstur ársins og er óhætt að segja að Hamilton sé með pálmann í höndunum í baráttunni við Sebastian Vettel um heimsmeistaratitilinn. Takist Hamilton að bæta átta stigum við forskot sitt á Vettel er titillinn hans þótt þrjár keppnir verði eftir.

Ef Hamilton tekst að vinna titilinn um helgina verður hann þriðji ökuþórinn í sögu Formúlunnar sem vinnur fimm heimsmeistaratitla á eftir hinum argentínska Juan Manuel Fangio sem einokaði keppnina fyrstu árin og goðsögninni Michael Schumacher sem vann sjö titla á sigursælum ferli sínum

Hamilton kom inn í Formúluna með látum í ársbyrjun 2007 og komst strax á verðlaunapall í fyrstu keppni fyrir hönd McLaren. Varð hann yngsti heimsmeistari ökuþóra í sögu keppninnar ári síðar. Tókst honum ekki að fylgja því eftir og eftir þrjú vonbrigðaár hjá McLaren samdi hann við Mercedes sem reyndist heillaskref fyrir báða aðila. Eftir að hafa lent í fjórða sæti á fyrsta tímabili vann hann tvo titla í röð og þrjá á síðustu fjórum árum og er á hraðferð í átt að fjórða meistaratitlinum á fimm árum. Hamilton þurfti að hætta keppni í Austurríki í byrjun júlí vegna vélar­bilunar en eftir það hefur allt gengið upp á tíu hjá honum. Forskot Hamiltons á Vettel var komið niður í tíu stig en þá setti Hamilton aftur í gír.  Skildi hann keppendurna eftir í reyknum með því að vinna sex keppnir og lenda í öðru sæti tvisvar í síðustu átta keppnum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×