Fótbolti

Sky: Lopetegui verður rekinn í dag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lopetegui á hliðarlínunni í gær.
Lopetegui á hliðarlínunni í gær. vísir/getty
Julen Lopetegui, stjóri Real Madrid, verður rekinn á næsta sólarhringnum ef marka má heimildir Sky Sports fréttastofunar.

Spánverjinn tók við liði Real Madrid í sumar af Zinedine Zidane en hann hefur einungis stýrt Real í tólf leikjum. Ekki hefur það gengið vel.

Lopetegui var þjálfari Spánar er hann var ráðinn sem stjóri Real Madrid en spænska knattspyrnusambandið sagði honum upp tveimur dögum fyrir HM.

Nú er hann í vandræðum hjá Real. Liðið tapaði í gær gegn Levante á heimavelli en liðið skoraði ekki mark í rúmar 480 mínútur sem er nýtt met hjá Real Madrid.

Real er án sigurs í síðustu fimm leikjum og Florentino Perez, forseti Real, hefur séð nóg. Hann vill Lopetegui burt og samkvæmt heimildum Sky gerist það í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×