Formúla 1

Sjáðu Raikkonen ná í fyrsta sigurinn í fimm ár

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Raikkonen fór með sigur af hólmi
Raikkonen fór með sigur af hólmi Vísir/Getty
Kimi Raikkonen og Max Verstappen komu í veg fyrir að Lewis Hamilton fagnaði heimsmeistaratitli ökuþóra í Formúlu 1 um helgina. Raikkonen sigraði kappaksturinn í Texas í gær.

Hamilton varð þriðji í kappakstrinum en annað sætið hefði dugað honum til að tryggja sér titilinn. Hinn ungi Verstappen gerði vel í að halda Bretanum fyrir aftan sig og frestaði þar með fögnuði Hamilton.

Sebastian Vettel, helsti keppinautur Hamilton, varð í fjórða sæti. 70 stigum munar á köppunum þegar 75 stig eru eftir í pottinum.

Samantekt frá kappakstri gærdagsins má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×