Viðskipti erlent

Sér fram á kaldan vetur hjá lág­gjalda­flug­fé­lögum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Michael O'Leary vonar að fleiri lággjaldaflugfélög fari á hausinn, það myndi henta Ryanair ágætlega.
Michael O'Leary vonar að fleiri lággjaldaflugfélög fari á hausinn, það myndi henta Ryanair ágætlega. Getty/Horacio Villalobos - Corbis
Framkvæmdastjóri Ryanair óttast að komandi vetur geti reynst mörgum lággjaldaflugfélögum erfiður. Tími sé kominn á samþjöppun í greininni, aukin samkeppni meðfram hækkandi olíuverði gangi ekki til lengdar. Þrátt fyrir að sætanýting Ryanair hafi verið um 96% og ferðum félagsins hafi fjölgað um 6% frá síðasta ári skilaði flugfélagið engu að síður um 7% minni hagnaði í sumar en í fyrra.

Hagnaður félagsins í sumar, þ.e. frá maíbyrjun fram til loka september, nam 1,2 milljörðum evra eða rúmlega 161 milljarði króna. Meðalverð flugmiðans var um 46 evrur sem er 3% lækkun frá síðasta sumri. Engu að síður jukust tekjur félagsins af hvers kyns viðbótum, eins og sætavali og auka farangursheimild, um 27% á milli ára.

Hækkandi olíuverð og harðnandi samkeppni hefur torveldað rekstur margra lággjaldaflugfélag á síðustu mánuðum; eins og Primera Air og Cobalt sem bæði lögðu upp laupana á síðustu vikum. Ryanair fór ekki varhluta af þessari þróun en eldsneytiskostnaður félagsins jókst um 22% á milli ára.

Kallar eftir samþjöppun

Forsvarsmenn Ryanair tilkynntu fyrr í þessum mánuði að fyrri afkomuspár félagsins myndu líklega ekki ganga eftir. Heildarhagnaður Ryanair fyrir yfirstandandi rekstrarár yrði líklega um 12% lægri en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Þær spár standi þó og falli með því að flugfargjöld lækki ekki meira á árinu og að olíuverð haldist nokkuð stöðugt út árið.

Haft er eftir framkvæmdastjóra Ryanair á vef breska ríkisútvarpsins að hann telji að komandi vetur gæti orðið mörgum lággjaldaflugfélögum „mjög, mjög erfiður.“ Nefnir hann sérstaklega Norwegian í þessu samhengi, sem greiðir 85 dali fyrir olíutunnuna. Í samanburði hefur Ryanair verið að greiða 68 dali fyrir tunnuna.

Hann segist jafnframt vona að fleiri lággjaldaflugfélög fari á hausinn. Það væri æskilegt fyrir Ryanair að samkeppni í greininni myndi minnka - auk þess sem fjöldi lággjaldaflugfélaga „eigi skilið að hverfa,“ eins og Michael O'Leary orðar það. Samþjöppun í fluggeiranum sé löngu tímabær.


Tengdar fréttir

Mikið tap hjá Arion vegna Primera Air

Arion banki hefur sent frá sér afkomuviðvörun sem samkvæmt heimildum Vísis má rekja til gjaldþrots Primera Air. Tilkynnt var í gær að flugfélagið myndi fara í greiðslustöðvun í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×