Sport

Davíð og Kristófer komust í undanúrslit í Grikklandi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
mynd/badmintonsamband íslands
Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson komust í undanúrslit á alþjóðlegu badmintonmóti sem haldið var í Grikklandi um helgina.

Mótið er hluti af International Series mótaröðinni og gefur það stig á heimslistann. Davíð og Kristófer náðu að safna vel af stigum með árangrinum á mótinu.

Íslendingaslagur varð í 16-liða úrslitum tvíliðaleiks karla þar sem Davíð og Kristófer kepptu við Eið Ísak Broddason og Róbert Þór Henn. Leikurinn fór 21-8 og 21-15 fyrir Davíð og Kristófer.

Þeir töpuðu 21-11 og 21-17 fyrir pólska parinu Adrian Dziolko og Michal Rogalski í undanúrslitunum.

Kári Gunnarsson komst lengst Íslendinganna í einliðaleik karla. Hann komst í 16-manna úrslit en tapaði þar fyrir þeim finnska Iikka Heino 21-13 og 21-17.

Arna Karen Jóhannsdóttir og Sigríður Árnadóttir komust í 16-liða úrslit í tvíliðaleik kvenna en mættu þar ofjörlum sínum frá Danörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×