Handbolti

Guðmundur fékk málmplötu á kaf í puttann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðmundur er á batavegi.
Guðmundur er á batavegi.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karlalandsliðsins, mætti með miklar umbúðir um hendina á fjölmiðlahitting í Laugardalshöll í dag.

„Ég fékk skurð á vísifingur og svo kom mikil ígerð í þetta. Ég er búinn að glíma við þetta í einhverja tíu daga,“ sagði Guðmundur léttur á brún í dag.

„Það fór málmplata á kaf í puttann á mér. Það lítur út fyrir að ég muni halda puttanum.“

Guðmundur er að fá landsliðið í hendurnar í dag en það mun hefja leik í undankeppni EM á miðvikudag. Þá koma Grikkir í heimsókn.

Nánar verður rætt við Guðmund í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.



 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×