Fótbolti

Ramos missti stjórn á skapi sínu og þrumaði bolta í liðsfélaga

Það var hundur í Ramos í dag.
Það var hundur í Ramos í dag. vísir/getty
Sergio Ramos, varnarmaður og fyrirliði Real Madrid, hefur beðist afsökunar á hegðun sinni á æfingu spænska liðsins í dag.

Ramos missti stjórn á skapi sínu er hinn 21 ára gamli Sergio Reguilon sló Ramos óvart í andlitið er liðið býr sig undir leik gegn VIktoria Plzen á morgun.

Ramos ákvað að taka bolta og þruma í unga strákinn en fyrirliðinn var fljótur til og birti afsökunarbeiðni á Twitter þar sem Reguilon var einnig á myndinni.

Reguilon spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Real er hann kom inn á sem varamaður er liðið tapaði 1-0 gegn CSKA í Meistaradeildinni.

Það er mikið bras á Real Madrid um þessar mundir en liðið hefur ekki unnið í fimm síðustu leikjum. Á morgun spila þeir gegn Viktoria Plzen og sá leikur verður að vinnast, eigi ekki illa að fara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×