Fótbolti

Enginn Mandzukic gegn United

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mandzukic verður ekki með Juventus annað kvöld.
Mandzukic verður ekki með Juventus annað kvöld. vísir/getty
Juventus verður án Mario Mandzukic er liðið spilar við Manchester United í Meistaradeildinni annað kvöld en liðin eigast við á Old Trafford.

Mandzukic er að glíma við ökkla meiðsli en félagið staðfesti í dag á vefsíðu sinni að hann væri ekki í leikmannahóp Massimiliano Allegri sem ferðaðist til Englands.

Mandzukic hefur byrjað tímabilið vel og skorað fjögur mörk í þeim tíu leikjum sem hann hefur spilað og var vonast eftir að hann myndi spila með Ronaldo í fremstu víglínunni á Old Trafford.

Svo verður ekki en Juventus er á toppi riðilsins með sex stig. United er með fjögur stig í öðru sætinu eftir markalaust jafntefli gegn Valencia í síðustu umferð.

Leikurinn annað kvöld verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2 en upphitun hefst klukkan 18.00. Leikurinn sjálfur hefst 19.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×