Viðskipti innlent

Borgar bændum fyrir að fá að grafa eftir rafmyntum á bæjum þeirra

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bændurnir eru sagðir hafa í fyrstu haft efasemdir um samstarfið.
Bændurnir eru sagðir hafa í fyrstu haft efasemdir um samstarfið. Fréttablaðið/Anton Brink
Krista Hannesdóttir, stærðfræðikennari við Keili, og rafmyntanámuvinnsla hennar í Sandgerði og nágrenni hefur vakið athygli en fjallað er um starfsemi Kristu á bresku fréttasíðunni Wired. Þar er Krista sögð hafa fundið sniðuga lausn við þeirri gríðarlegu orkuþörf sem þarf til þess að grafa eftir rafmyntum.

Starfrækir hún lítið gagnaver í Sandgerði og fetar þar með í fótspor stærri fyrirtækja sem reka gríðarstór gagnaver á Suðurnesjum, sem að mestu eru brúkuð til að grafa eftir rafmyntum á borð við Bitcoin og Ethereum. Slík starfsemi hefur aukist gríðarlega um allan heim undanfarin ár en sá galli er á henni að starfsemin notar gríðarlegt rafmagn.

Krista Hannesdóttir, stærðfræðikennari hjá Keili er með rafmyntanámuvinnslu í Sandgerði.Keilir
Hér á landi er talið að gagnaver noti 840 gígavattstundir við námugröftinn, sem er meira en öll heimili landsins nota til samans. Hefur þessi gríðarlega orkuþörf verið gagnrýnd en Krista hefur fundið lausn sem gerir henni kleyft að spara rafmagn og minnka kostnað. Og þar koma bændurnir við sögu

„Bændur eru með mikið geymslurými og það er auðveldara fyrir okkar að flytja búnaðinn til þeirra,“ segir Krista í samtali við Wired. 

Greiðir hún bændunum fyrir umframorku sem þeir þurfa ekki að nota og í staðinn fær hún að setja upp tölvubúnað í geymslunum. Tölvubúnaðurinn er svo notaður til þess að grafa eftir rafmyntinni Ethereum á bóndabæjunum, auk gagnaversins litla í Sandgerði.

Skapar rúmlega milljón á mánuði

Við vinnsluna skapast töluverður hiti og er hann notaður til þess að hita upp rýmin sem vinnslan fer fram í að sögn Kristu. Þetta segir að hún að sé mjög hagkvæmt, það lækki leiguna sem hún þurfi að greiða og spari bændum upphitunarkostnað.

Krista segir þó að ekki hafi verið auðvelt að sannfæra bændurna um samstarfið.

Virði Bitcoin reis hratt undir lok síðasta árs en hefur fallið síðan þá
„Við þurftum að útskýra vel fyrir þeim hvað þetta væri, að þetta væri búnaður sem býr til pening og notar orku. Fólk hefur sínar efasemdir, auðvitað, vegna þess að þetta hljómar of gott til að vera satt. En þetta er mjög gott fyrir okkur þar sem við fáum orku og húsnæði á lægra verði,“ segir Krista.

Í umfjöllun Wired segir að bændurnir hafi hljótt um þátttöku sína í samstarfinu þar sem þeir óttist að það geti haft áhrif á styrki sem þeir fái auk þess sem að óvissa sé uppi um lagalega hlið málsins.

Þetta skilar sér þó fyrir Kristu sem á hverjum mánuði grefur upp tölvubúnaðurinn upp Ethereum-mynt að virði 1,2 milljóna króna.

Umfjöllun Wired má lesa hér.


Tengdar fréttir

Grafið eftir Bitcoin í íslenskum gagnaverum

Erlendir aðilar horfa til íslenskra gagnavera í auknum mæli meðal annars til að grafa eftir Bitcoin rafmyntum. Raforkusala til gagnavera hefur margfaldast á undanförnum árum og orkufyrirtækin finna fyrir aukinni eftirspurn.

Fjámálaeftirlitið varar við rafmyntum

Fjármálaeftirlitið telur sérstaka ástæðu til þess að vara almenning við þeirri "miklu áhættu“ sem fylgir viðskiptum með rafræna gjaldmiðilinn Bitcoin. Neytendur eigi ekki að hætta fjármunum sem þeir mega ekki við að tapa í fjárfestingar í gjaldmiðlinum, nema þá að mjög vel athuguðu máli.

Býst við því að gagnaver fari fram úr heimilum

Mikill uppgangur er í gagnaveituiðnaðinum hér á landi og hafa fjölmörg fyrirtæki sem sérhæfa sig í svokölluðum námugreftri rafmynta leitað eftir því að byggja gagnaver hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×