Viðskipti innlent

Ekkert fannst í búi Ugly Pizza

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Athafnamaðurinn Unnar Helgi Daníelsson rak Ugly Pizza.
Athafnamaðurinn Unnar Helgi Daníelsson rak Ugly Pizza. Fréttablaðið/eyþór
Ekkert fékkst upp í næstum 9 milljóna kröfur í þrotabú félagsins Uglý Pizza ehf., sem hélt utan um rekstur samnefnds veitingastaðar. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember í fyrra en engar eignir fundust í búinu, að því er fram kemur Lögbirtingablaðinu.

Ugly Pizza opnaði fyrsta útibú sitt á Smiðjuvegi í Kópavogi í desember 2015 en fluttist síðar að Lækjargötu í Reykjavík. Sérkenni staðarins voru pizzubotnar úr blómkáli. Lögun þeirra þótti ekki fögur og dró Ugly Pizza nafn sitt af hinum ljótu botnum.

Eigandi Ugly Pizza var Unnar Helgi Daníelsson, sem stundað hefur margvíslegan rekstur í miðborg Reykjavíkur. Hann opnaði til að mynda skemmtistaðinn Secret Cellar í sumar, sem einnig stendur við Lækjargötu. Hann sagði í samtali við fjölmiðla við opnun Ugly Pizza að hugmyndin væri að opna „keðju af ljótustu pítsustöðum bæjarins.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×