Handbolti

Handbolta-þyrla: Náði Sandra að þagga niður í Loga?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sandra undirbýr sitt fyrsta kast.
Sandra undirbýr sitt fyrsta kast. mynd/skjáskot
Í ár eru liðin tíu ár frá því að strákarnir okkar í handboltalandsliðinu unnu til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum. Gott silfur gulli betra og allt það.

Í tilefni þess hefur Olís verið að bjóða upp á skemmtilega leiki á Facebook þar sem silfurdrengirnir hafa verið að keppa við leikmenn í Olís-deildum karla og kvenna.

Nýjasti þátturinn sýnir Söndru Erlingsdóttur, leikstjórnanda Vals, kljást við Loga Geirsson en Logi var mjög sigurviss fyrir keppnina.

Þau áttu að henda bolta úr þyrlu, niður á jörðina og reyna að hitta í hringi. Sá leikmaður sem fengi fleiri stig myndi vinna. Einfalt.

Þessa bráðskemmtilegu keppni má sjá hér að neðan og sjón er svo sannarlega sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×