Körfubolti

Blake Griffin með 50 stig í enn einum sigri Detroit Pistons

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ótrúleg frammistaða Blake Griffin í nótt
Ótrúleg frammistaða Blake Griffin í nótt vísir/getty
Það voru aðeins þrír leikir á dagskrá NBA deildarinnar í nótt en það vantaði engu að síður ekki dramatíkina þar sem leikur Detroit Pistons og Philadelphia 76ers var algjörlega magnaður.

Blake Griffin átti magnaðan leik í liði Pistons; skoraði 50 stig, tók 14 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hann var allt í öllu, bæði á lokasekúndum venjulegs leiktíma og á lokasekúndum framlengingarinnar en Pistons vann með minnsta mun eftir framlengingu, 133-132.

Helstu atvik leiksins má sjá neðst í fréttinni en Pistons er enn taplaust eftir þrjá leiki.

New Orleans Pelicans vann einnig sinn þriðja leik í nótt þegar þeir fengu Los Angeles Clippers í heimsókn. Anthony Davis atkvæðamestur eins og stundum áður með 34 stig og 13 fráköst.

Þá vann Denver Nuggets fjórða leik sinn í röð þegar liðið fékk Sacramento Kings í heimsókn. Lokatölur 126-112 en átta leikmenn Nuggets skoruðu yfir 10 stig í leiknum. Stigahæstur var Jamal Murray með 19 stig.

Úrslit næturinnar

Detroit Pistons 133-132 Philadelphia 76ers

New Orleans Pelicans 116-109 Los Angeles Clippers

Denver Nuggets 126-112 Sacramento Kings

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×