Viðskipti erlent

Tesla skilar hagnaði eftir „sögulegan fjórðung“

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikið hefur gengið á hjá fyrirtækinu á undanförnum mánuðum og hefur mikið kapp verið lagt í það að auka framleiðslu Tesla upp í fimm þúsund bíla á viku.
Mikið hefur gengið á hjá fyrirtækinu á undanförnum mánuðum og hefur mikið kapp verið lagt í það að auka framleiðslu Tesla upp í fimm þúsund bíla á viku. AP/Marcio Jose Sanchez
Bílaframleiðandinn Tesla skilaði hagnaði á þriðja fjórðungi ársins sem Elon Musk, stofnandi fyrirtækisins, lýsir sem „sögulegum“. Það er í fyrsta sinn frá árinu 2016 og var hagnaður fyrirtækisins 312 milljónir dala.



Tekjur Tesla á ársfjórðunginum voru 6,8 milljarðar dala, sem var vel fram úr væntingum greiningaraðila, samkvæmt Washington Post, og rúmlega tvöfalt meira en hagnaður fyrirtækisins á sama ársfjórðungi í fyrra.



Mikið hefur gengið á hjá fyrirtækinu á undanförnum mánuðum og hefur mikið kapp verið lagt í það að auka framleiðslu Tesla upp í fimm þúsund bíla á viku. Á undanförnum vikum hefur meðaltalið verið um 4.300 bílar en þar hefur þó mikill árangur náðst.

Aukin framleiðsla hefur verið lykilatriði í því að fyrirtækið skili hagnaði og hefur Musk heitið því að það sama verði á teningnum á fjórða ársfjórðungi ársins.

Forsvarsmenn Tesla ætla að hraða opnun verksmiðju í Kína til að framleiða og selja Model 3 bíla fyrirtækisins þar í landi. Vonast er til þess að fyrstu bílarnir verði seldir á næsta ári. Tollar gætu þó komið niður á tekjumöguleikum Tesla í Kína.

 


Tengdar fréttir

Rændi Teslu með snjallsímanum einum saman

21 árs gamall karlmaður í Minnesota í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn grunaður um þjófnað á Tesla Model 3 bíl sem var til sýnis í Mall of America verslunarmiðstöðinni í Minneapolis.

Elon Musk reykti kannabis í beinni útsendingu og fjárfestar ókyrrast

Milljarðamæringurinn og lífskúnstnerinn Elon Musk reykti í morgun kannabis vindling í beinni útsendingu vefþáttar grínistans Joe Rogan. Musk og fyrirtæki hans, bílaframleiðandinn Tesla, sæta nú opinberri rannsókn á Twitter skilaboðum sem Musk er grunaður um að hafa sent undir áhrifum fíkniefna.

Elon Musk stígur til hliðar sem stjórnarformaður Tesla

Elon Musk mun stíga til hliðar sem stjórnarformaður Tesla fyrirtækisins. Hann verður þó forstjóri fyrirtækisins áfram. Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur sektað Tesla fyrirtækið um 20 milljónir Bandaríkjadala og Elon Musk um sömu upphæð.

Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla

Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna.

Elon Musk kærður fyrir svik

Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur kært Elon Musk, forstjóra bílaframleiðandans Tesla, fyrir svik í tengslum við tíst hans um að taka fyrirtækið af markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×