Innlent

Krefur skipuleggjendur Kvennafrídagsins um afsökunarbeiðni vegna ræðu Áslaugar Thelmu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits.
Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits. Mynd/Mannvit
Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Mannvits og fyrrverandi markaðs- og mannauðsstjóri hjá Kviku banka, krefst þess að skipuleggjendur Kvennafrídagsins biðji starfsmannastjóra Orkuveitunnar afsökunar vegna ræðu Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, sem sagt var upp störfum hjá Orku náttúrunnar í september síðastliðnum. Hildur segir umfjöllun fjölmiðla um mál Áslaugar Thelmu einhliða og lýsir yfir áhyggjum af trúverðugleika #MeToo-byltingarinnar, komi í ljós að Áslaug Thelma sé ekki að segja satt.

Sagði sporin þung á fundum með starfsmannastjóra

Töluvert hefur verið fjallað um mál Áslaugar Thelmu í fjölmiðlum en hún segist enn engar skýringar hafa fengið á uppsögn sinni. Uppsögnina segir hún þó tengjast því að hún kvartaði undan óeðlilegri hegðun framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar. Eftir að hafa sagt forstjóra OR frá hegðun framkvæmdastjórans var framkvæmdastjóranum sagt upp nánast samdægurs.

Áslaug Thelma var á meðal mælenda á dagskrá Kvennafrídagsins á Arnarhóli í gær. Í ræðu sinni sagði hún m.a. að erfitt hafi verið að fara á fundi með starfsmannastjóra Orkuveitunnar, Sólrúnu Kristjánsdóttur, og tilkynna um „dónaskap og ruddaskap“. Þá hafi einnig verið erfitt að funda með starfsmannastjóra og forstjóra í kjölfarið, og heyra þá að yfirmanninum verði gefið annað tækifæri. Ræðu Áslaugar Thelmu má horfa á í heild í spilaranum hér að neðan.

Konu gefið tækifæri til að ráðast á aðra konu

Hildur gagnrýnir Áslaugu Thelmu harðlega fyrir að „beina spjótum sínum sérstaklega að starfsmannastjóra Orkuveitunnar sem einnig er kona“ í Facebook-færslu sem hún birti í gær.

„Í dag fannst mér afskaplega sorglegt að sjá konu afhent gjallarhorn og gefið tækifæri til að ráðast á aðra konu. Hún fékk að ávarpa samkomuna í dag og ráðast að konu í stjórnunarstöðu sem starf síns vegna getur ekki varið sig gegn málflutningi hennar,“ skrifar Hildur, og vísar þar í áðurnefnda ræðu.

Þá segir Hildur að skipuleggjendum Kvennafrídagsins ætti að vera fullljóst að fjölmiðlaumfjöllun um mál Áslaugar Thelmu endurspegli aðeins það sem fram hefur komið í málflutningi Áslaugar Thelmu og eiginmanns hennar, Einars Bárðarsonar. Starfsmannastjóri og aðrir stjórnendur Orkuveitunnar séu hins vegar bundnir trúnaði og geti ekki tjáð sig efnislega um málið í fjölmiðlum.

Áslaug Thelma Einarsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður hjá Orku náttúrunnar. Hún segir enn engar skýringar hafa fengið á uppsögn sinni.

Hefur áhyggjur af alvarlegu bakslagi

Niðurstöður innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á málinu séu jafnframt ekki ljósar og því sýni það mikið dómgreindarleysi af hálfu skipuleggjenda að setja málið í brennidepil.

„Áhyggjur mínar lúta ekki hvað síst að trúverðugleika #metoo byltingarinnar og virðingu fyrir málstað okkar kvenna sem berjumst fyrir jafnrétti. Ef það kemur nú í ljós í kjölfar athugunar innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar að Áslaug Thelma sé ekki að segja allan sannleikann þá gæti það orðið alvarlegt bakslag fyrir þessa mikilvægu baráttu,“ skrifar Hildur og kallar eftir afsökunarbeiðni.

„Mér rennur því blóðið til skyldunnar sem baráttukona fyrir jafnrétti að óska eftir því að skipuleggjendur hátíðarinnar biðji starfsmannastjóra Orkuveitunnar opinberlega afsökunar á að hafa þurft að sitja undir þessum árásum í dag.“



Segir starfsmannastjóra geranda í málinu

Einar Bárðarson, eiginmaður Áslaugar Thelmu, tjáði sig síðast um málið í pistli á Facebook-síðu sinni í gær. Hann setur þar spurningamerki við getu innri endurskoðunar Reykjavíkur til að gæta hlutleysis í rannsókninni á máli Áslaugar Thelmu. Einar byggir málflutning sinn á því að innri endurskoðun hafi óskað eftir gögnum málsins frá Orkuveitunni en þau gögn hafi starfsmannastjóri OR, „gerandi í málinu“, tekið til fyrir lögmann.

„Innri Endurskoðun Reykjavíkuborgar er örugglega að gera sitt besta. En maður biður ekki ölvaðan ökumann að skjótast einan á bílnum niður á Landspítala í blóðprufu. Það bara virkar ekki þannig,“ skrifar Einar.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×