Upplifðu vetrarfegurðina á Húsafelli Hótel Húsafell kynnir 30. október 2018 10:45 Hótel Húsafell er staðsett í náttúruperlu milli hrauns og jökla. Hótel Húsafell
Hótel Húsafell er staðsett í einstakri náttúruperlu milli hrauns og jökla. Sumir vilja meina að á Húsafelli sé fádæma veðursælt og þar sé einna líklegast að sjá til norðurljósa. Kristján Guðmundsson, markaðsstjóri Hótels Húsafells tekur undir þetta, vetrarfegurðin sé ævintýraleg á Húsafelli.Tilkomumikill fjallahringurinn og jöklarnir sjást vel frá hótelinu. Fjölmargar fallegar gönguleiðir liggja um svæðið.„Hér eru fjölmargar fallegar gönguleiðir og vinsælt hjá gestum að fá sér góðan göngutúr við komuna á hótelið, áður en sest er til borðs. Úr matsalnum okkar er einnig stórkostlegt útsýni til jöklanna. Hingað er stutt að fara fyrir borgarbúa sem vilja eiga notalegan tíma í kyrrðinni, slaka á og borða góðan mat,“ segir Kristján en Hótel Húsafell er í rétt rúmlega eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík.Meðal þess sem gleður augað í landslaginu eru verk listamannsins Páls á Húsafelli en hann heggur meðal annars lágmyndir í steina í landi Húsafells. Höggmyndir og listaverk eftir Pál prýða einnig hótelið sjálft. Fyrir ævintýragjarna gesti er hraunhellirinn Víðgelmir á næstu grösum, stærsti hellir landsins og einnig íshellirinn í Langjökli, en boðið er upp á ferðir í hellana allan ársins hring. Kristján segir ferðirnar einstaka upplifun. Svæðið kringum hótelið hafi upp á ótalmargt að bjóða og vinsælt sé að gefa gjafabréf á Hótel Húsafell í jólagjafir.Gistingu á Hótel Húsafelli fylgir aðgangur að sundlaug og heitum laugum á opnunartíma.Gjafabréfin vinsæl jólagjöf„Gjafabréf í mat og gistingu hjá okkur eru tilvalin jólagjöf. Við erum með gjafabréf sem gilda allt árið en einnig gjafabréf sem gilda yfir veturinn. Innifalið í gistingu er morgunverður og aðgangur að sundlauginni á opnunartíma. Við laugina eru heitir pottar og tvær heitar laugar og hægt er að fá lánaðan búnað til að fljóta í lauginni og upplifa þannig algera slökun,“ segir Kristján.Fimm rétta jólaseðillJólaseðill hótelsins er ekki af verri endanum en hann telur fimm rétti sem kitla bragðlaukana. Meðal rétta er pönnusteikt hörpuskel með pressaðri svínasíðu, eplasultu og sellerírót og nautalund með rösti kartöflum, jarðskokkum og rauðvínsgljáa. Jólaseðillinn gildir frá 25. nóvember til 18. Desember.Gestir njóta matarins í hlýlegu umhverfi. Fimm rétta jólaseðill gildir til 18. desember.Heitar náttúrulaugar„Eftir vel heppnaða ferð á Húsafell er svo hægt að setja punktinn yfir iið með heimsókn í Krauma heilsulind, þar er að finna náttúrulaugar með tæru vatni úr Deildartunguhver og tvennskonar gufuböð,“ segir Kristján. Aðeins er um 25 mínútna akstur frá Hótel Húsafelli í Krauma, í leiðinni til baka til Reykjavíkur. Nánari upplýsingar um jólaseðil Hótels Húsafells og gjafabréfin er að finna á www.hotelhusafell.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Hótel Húsafell Ferðaþjónusta í Borgarfirði var umfjöllunarefni þáttarins Um land allt á dögunum en þá heimsótti Kristinn Már Unnarsson meðal annars Hótel Húsafell. Horfa má á þáttinn hér fyrir neðan.
Borgarbyggð Um land allt Mest lesið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Lífið Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Lífið Fleiri fréttir Spennan magnast í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum! Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Elira flutt á yndislegan stað á Kirkjusandi Bjargvættur fyrir þurrt og þreytt hár Svefninn mun dýpri og betri með tilkomu Neubria Sleep Stórkostleg áhrif á fíngert hár Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið Þetta eru snyrtivörurnar sem skipta mestu máli Troðfullt á fermingarkvöldi Hagkaups Páskaegg fyrir sanna bragðarefi Askja frumsýnir nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB Litlu hlutirnir sem geta skipt sköpum Topp tíu listi yfir nauðsynlegar skíðavörur „Femarelle það eina sem hefur virkað fyrir mig“ Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku Topp tíu listi yfir förðun og húðumhirðu fyrir ferminguna Saltblár er litur ársins hjá KitchenAid Spretthlaup frá grænmetisdeildinni niður í leikfangadeild Spennandi snúningur á ljúffengri klassík Sjá meira