Lífið

Krakkarnir úr Mrs. Doubtfire áttu endurfundi aldarfjórðungi eftir frumsýningu

Atli Ísleifsson skrifar
Perce Brosnan, Lisa Jakub, Matthew Lawrence, Robin Williams og Mara Wilson á frumsýningu myndarinnar árið 1993.
Perce Brosnan, Lisa Jakub, Matthew Lawrence, Robin Williams og Mara Wilson á frumsýningu myndarinnar árið 1993. Getty
Tæpur aldarfjórðungur er nú síðan kvikmyndin Mrs. Doubtfire var frumsýnd og af því tilefni voru haldnir endurfundir nokkurra leikara myndarinnar í Los Angeles í gær.

Kvikmyndin var frumsýnd 24. nóvember 1993 og skartaði þeim Robin Williams heitnum og Sally Field í aðalhlutverki og fjallaði um tilraunir persónu Williams til að geta varið meiri tíma með börnum sínum eftir skilnað hans og persónu Field. Eins og aðdáendur myndarinnar vita tók persóna Williams þá til þess bragðs að klæða sig upp sem eldri kona, Mrs. Doubtfire, og ráða sig til vinnu sem heimilishjálp á heimili eiginkonunnar fyrrverandi.

Leikararnir sem fóru með hlutverk barnanna – þau Lisa Jakub, 39 ára, Matthew Lawrence, 38 ára og Mara Wilson, 31 árs – hittust í gær í Los Angeles og birti Jakub mynd af þeim á samfélagsmiðlum af því tilefni. Með þeim var írski leikarinn Pierce Brosnan, sem fór með hlutverk vonbiðils persónu Sally Field í myndinni.

„Þetta var að gerast,“ segir Jakub.

 
 
 
View this post on Instagram
So this happened. #mrsdoubtfire #reunion #25yearslater

A post shared by Lisa Jakub (@lisajakub108) on Oct 24, 2018 at 3:07pm PDT

 
 
 
View this post on Instagram
And then there was this. #mrsdoubtfire #reunion #25yearslater

A post shared by Lisa Jakub (@lisajakub108) on Oct 24, 2018 at 3:44pm PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×