Innlent

Hnífar og sverð á heimili parsins sem játar að hluta kynferðisbrot gegn börnum sínum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Yfir 800 myndir og 29 myndbönd fundust á tölvubúnaði parsins sem sýndi börn á kynferðislegan hátt.
Yfir 800 myndir og 29 myndbönd fundust á tölvubúnaði parsins sem sýndi börn á kynferðislegan hátt. Getty Images
Hnífar, sverð, kasthnífar og slöngubyssa er á meðal þess sem fannst á heimili pars á Suðurnesjum sem ákært er af héraðssaksóknara fyrir að brjóta gegn börnum sínum kynferðislega. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær og greindi RÚV frá því að parið hefði játað að hluta brot sín.

Ákæran á hendur parinu er í fimm liðum. Parið er ákært fyrir kynferðisbrot og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa nauðgað dóttur konunnar, sem er stjúpdóttir mannsins, og tekið myndir og myndbönd af brotunum fyrr á árinu. Í sama lið eru þau ákærð fyrir að hafa veitt henni áfengi og fyrir að hafa framleitt myndefni sem sýndi barnið á kynferðislegan hátt.

Í öðrum ákærulið eru þau ákærð fyrir kynferðisbrot og brot í nánu sambandi gegn systur stúlkunnar sem parið á saman. Samkvæmt ákærunni brutu þau gegn eldri stúlkunni að þeirri yngri viðstaddri. Með háttsemi sinni eru þau sögð hafa sært blygðunarsemi stúlkunnar og ógnað velferð hennar alvarlega.

Vopn og rassskellingar

Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni rúmlega 800 ljósmyndir og 29 myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan hátt. Myndefnin voru geymd á minnislykli, borðtölvu, fartvölu og átta geisladiskum en þau fundust við leit í júlí í sumar.

Þá er hann ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni hníf annars vegar og skrauthníf hins vegar með 14 cm blaði. Butterfly hníf og tvo stunguhnífa, hálfs metra langt sverð og annað brotið sverð auk kasthnífs og slöngubyssu. Vopnin fundust við fyrrnefnda leit.

Auk þess er maðurinn ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á sjö ára tímabili ítrekað rassskellt dóttur sína og son sinn á beran rassinn.

Krefjast 8,5 milljóna í bætur fyrir börnin

Rannsókn málsins hófst þegar önnur dóttirin kom á lögreglustöð í júlí og lagði fram kæru á hendur móður sinni og stjúpföður. Voru þau bæði hneppt í gæsluvarðhald og hefur maðurinn setið í gæsluvarðhaldi síðan þá. Konunni var sleppt í sumar en aftur úrskurðuð í gæsluvarðhald fyrr í október.

Hún bar því við í sumar að hafa verið mjög ölvuð þegar nauðgunin átti sér stað og gerði lítið úr sínum hlut. Þegar hins vegar myndbandsupptökur voru skoðaðar, sem fundust á myndavél sem falin var í fataskáp á heimili fólksins í Sandgerði, kom í ljós að þáttur konunnar var mun meiri og tók hún virkan þátt í brotinu að mati ákæruvaldsins.

Samkvæmt heimildum Vísis játaði parið hluta af þeim kynferðisbrotum sem þau eru sökuð um við þingfestinguna í gær. Bæði höfðu áður játað hluta af brotum sínum við skýrslutöku hjá lögreglu. Þau neituðu þó sök í hluta málsins við þingfesting. Framundan verður fyrirtaka í málinu 5. nóvember þar sem líklegt má telja að aðalmeðferð verði tímasett.

Fimm milljóna króna er krafist í miskabætur fyrir eldri dótturina og tveggja milljóna fyrir þá yngri. Þá er krafist 1,5 milljóna króna fyrir son þeirra.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×