Erlent

Trump þvertekur fyrir að hann beri ábyrgð

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Manuel Balce Ceneta
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist enga ábyrgð bera á því að stuðningsmaður hans sendir sprengjur til andstæðinga hans. Hann bar sprengjusendingarnar saman við skotárás stuðningsmanns Bernie Sanders á Repúblikana þar sem þeir voru að æfa sig fyrir hafnarboltaleik í fyrra.

Þá segir forsetinn að umfjöllun fjölmiðla um sprengjurnar hafi dregið úr gengi Repúblikana í aðdraganda kosninga í næsta mánuði og að fjölmiðlar séu ósanngjarnir við Repúblikana.

Cesar Sayoc, maðurinn sem hefur verið ákærður fyrir að senda sprengjurnar, skildi fingraför og lífsýni eftir á einum pakkanum og býr rétt hjá pósthúsinu sem hann notaði til að senda pakkana. Hann var handtekinn í dag.

Sjá einnig: Hinn grunaði á langan sakaferil að baki



Sayoc virðist hafa verið harður stuðningsmaður Trump frá því áður en hann bauð sig fram til forseta. Í maí 2015 tilkynnti Sayoc að þjófar hefðu stolið af honum og þar með talið Trump varningi fyrir þúsundir dali. Trump tilkynnti framboð sitt í júní 2015.

Trump ræddi við blaðamenn í dag þar sem hann hrósaði löggæslumönnum Bandaríkjanna sem gómuðu Sayoc. Þá sagði hann einnig að hann bæri enga ábyrgð á aðgerðum Sayoc og talaði um að umfjöllunin um sendingarnar, sem hann sagði vera réttmæta, hefði komið niður á Repúblikanaflokknum.

Hann sagði einnig að fjölmiðlar væru „ótrúlega ósanngjarnir“ gagnvart sér og Repúblikönum en hann svaraði ekki spurningu um á hvaða hátt fjölmiðlar væru ósanngjarnir. Þá sagði Trump að hann hefði dregið úr kosningaáróðri sínum.

Það er vert að taka fram að fólkið sem sprengjur voru sendar til, og CNN, eru ekki bara gagnrýnendur Trump. Þetta eru aðilar sem Trump sjálfur hefur margsinnis veist að og það reglulega. Þá hafa miklir stuðningsmenn forsetans í fjölmiðlum og annars staðar skapað fjölmargar samsæriskenningar í kringum þetta fólk.

Trump gaf sjálfur í skyn í dag að árásirnar væru gabb þegar hann setti gæsalappir utan um orðið sprengja í tísti. Það leiddi til þess að yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, sem Trump skipaði í embætti, þurfti að staðhæfa á blaðamannafundi í dag að þetta væri ekki gabb. Sprengjurnar hefðu verið raunverulegar.

Hér má sjá myndband frá blaðamannafundi í dag þar sem Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, og Christopher Wray ræddu stöðuna í kjölfar handtöku Sayoc.


Tengdar fréttir

Leita logandi ljósi að sökudólgi

FBI stýrir rannsókn á sprengjusendingum til áhrifamanna innan bandaríska vinstrisins. Ekki víst að sprengjunum hafi verið ætlað að springa. Forsetinn kennir fjölmiðlum um hatursfulla orðræðu en eitt fórnarlamba skýtur til baka á forsetann og segir æsimennsku hans og hótanir til háborinnar skammar.

Trump kennir fjölmiðlum um reiði í skugga bréfsprengna

Raddir hafa heyrst um að Trump forseti hafi kynt undir ofsa gegn andstæðingum sínum eftir að bréfsprengjur hófu að berast andstæðingum hans. Hann reynir nú að snúa taflinu við og kennir fjölmiðlum um að hafa skapað hatursástand í samfélaginu.

Hinn grunaði á langan sakaferil að baki

Yfirvöld Bandaríkjanna hafa opinberað nafn mannsins sem grunaður er um að hafa sent sprengjur víða um Bandaríkin á undanförnum dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×